Eigið fé eignamesta tíundahluti fjölskyldna hér á landi nam um 2.728 milljörðum króna á árinu 2018 sem jafngildir tæplega 58% af öllu eiginfé heimila í landinu samkvæmt nýbirtum tölum Hagstofu Íslands um skulda og eignastöðu heimila.
Eigið fé eignamesta tíundahluti fjölskyldna hér á landi nam um 2.728 milljörðum króna á árinu 2018 sem jafngildir tæplega 58% af öllu eiginfé heimila í landinu samkvæmt nýbirtum tölum Hagstofu Íslands um skulda og eignastöðu heimila. Á sama tíma nam eigið fé 1-8 tíundar samtals um 948 milljörðum króna.
Heildareignir heimilanna námu í árslok 2018 6.855 milljörðum króna sem er aukning um 13% frá fyrra ári. Til heildareigna teljast fasteignir, ökutæki, innistæður í bönkum og verðbréf. Hlutdeild fasteigna í heildareignum nemur ríflega 75%. Á sama tíma námu heildarskuldir heimilanna 2.111 milljörðum sem er aukning um 7,6% frá árslokum 2017.
Eigið fé heimilanna, sem er mismunur á heildareignum og skuldum, nam þannig samtals 4.744 milljörðum króna í lok árs 2018 og jókst um 15,6% frá fyrra ári.