Um er að ræða breytingar á hámarki einstakingsstyrkja í öllum fjórum fræðslusjóðum félagsins; Landsmennt, Sveitamennt, Ríkismennt og Sjómennt. Í kjölfarið hækkar þriggja ára uppsafnaði styrkurinn og jafnframt styrkur vegna tómstundanáms.
Um er að ræða breytingar á hámarki einstaklingsstyrkja sem taka gildi hjá öllum sjóðunum fjórum,
Landsmennt, Sveitamennt, Ríkismennt og Sjómennt
Hámarksgreiðsla á ári fer úr kr. 75.000,- fyrir almennt nám í kr. 100.000,-
Þriggja ára uppsafnaður styrkur hækkar úr kr. 225.000,- í kr. 300.000,- fyrir eitt samfellt nám
Hámarksstyrkur vegna námskeiða sem falla undir frístunda/tómstundanámskeið munu hækka úr kr. 20.000 í kr. 30.000,- á ári og dregst jafnframt af heildarupphæð einstaklingsstyrks þess árs.
Þá er athygli vakin á því að sérstakur styrkur vegna meiraprófs fellur undir almenna einstaklingsstyrki og
verður því áfram kr. 100.000.-.
ATH: Um er að ræða breytingar sem taka gildi f.o.m. 1. janúar 2018 og þá gagnvart því námi sem hefst
frá og með þeim tíma.
Aðrar reglur verða óbreyttar og gilda samhliða fyrrgreindum breytingum.