Klukkan 10 í morgun var 36. þing Alþýðusambands Norðurlands sett á Illugastöðum í Fnjóskadal. 73 þingfulltrúar sitja þingið, þar af koma 7 frá Öldunni stéttarfélagi. Þinginu mun ljúka um hádegi á morgun.
Klukkan 10 í morgun var 36. þing Alþýðusambands Norðurlands sett á Illugastöðum í Fnjóskadal. 73 þingfulltrúar sitja þingið, þar af koma 7 frá Öldunni stéttarfélagi. Þinginu mun ljúka um hádegi á morgun en að venju er dagskráin stútfull af áhugaverðu efni.
Dagskrá 36. þings Alþýðusambands Norðurlands:
Föstudagur 27. september 2019
10:00 Setning þingsins
Skýrsla stjórnar
Skipun starfsnefndar þingsins
Málefnanefnd þingsins fjallar um vinnubröð við kjarasamningagerð
Skipun kjörbréfanefndar
10:30 Jafnréttisviðhorf og samfélagsáhrif í minni byggðarlögum
           – ungar konur á búferlaflutninga
           Gréta Bergrún Jóhannesdóttir doktorsnemi við Háskólann á Akureyri
11: 00 Kaffihlé
11:10 Slysatryggingar skv. kjarasamningi FMA og/eða skaðatrygging
          Óðinn Elísson ræðir um muninn á þessum tveimur tryggingum.
11:40 Gagnaver Borealis Data Center á Blönduósi
           Valdimar O. Hermannsson sveitarstjóri á Blönduósi
12:10 Hádegisverður
12:40 Grái herinn 
          Fulltrúi samtaknna ræðir stöðu eldra fólks í þjóðfélaginu.
13:10 Ávarp forseta ASÍ – Hið persónulega og hið verkalýðspólítíska
          Drífa Snædal ræðir verkalýðsmál og leiðir umræðuna inn í panel.
13:40 Panellinn
          Forsvarsmenn stéttarfélaga og forseti ASÍ sitja fyrir svörum
14:10 Önnur mál
14:20 Miðdegiskaffi
14:40 Vinna umræðuhópa
          Eyrún Valsdóttir stjórnar vinnuhópum
17: 00 Hlé
19:30 Kvöldverður og kvöldvaka, gaman saman
Laugardagur 28. september 2019
10:00 Afgreiðsla og ályktanir
          Niðurstaða tillagna frá málefnanefnd og stjórn kynntar og lagðar fram 
          til umsagnar og afgreiðslu.
          Ályktanir þingsins.
10:45 Ársreikningar 2017 og 2018
          Fjárhagsáætlun 2019-2020
11:10 Kosningar
11:15 Önnur mál
11:30 Þingslit
          Hádegisverður
Nefndir á þinginu:
Gert er ráð fyrir að aðeins ein nefnd starfi á þinginu og fjalli um vinnubrögð við gerð kjarasamninga.
Á þinginu mun stjórn sambandsins flytja tillögu um fjárhagsáætlun fyrir árin 2019-2020 og næstu stjórn, varastjórn og skoðunarmenn reikninga. Jafnframt mun stjórnin sjá um vinnslu og afgreiðslu kjörbréfa.
