Rafræn málþing 23.-26.febrúar
Haldnir verða fjórir áhugaverðir fyrirlestrar um stöðu erlends verkafólks á Íslandi.
Viðburðunum verður streymt og þeir textatúlkaðir á íslensku og ensku.
Efling, Starfsgreinasambandið og ASÍ efna til málþings um stöðu erlends verkafólks á Íslandi dagana 23.-26. febrúar.
Boðið verður upp á áhugaverða dagskrá í formi fyrirlestra og umræðna. Um fjóra viðburði er að ræða sem verður streymt á miðlum samtakanna. Viðburðirnir verða textatúlkaðir á íslensku og ensku.