Í vikunni var fjármálaáætlun líka kynnt og var lítið um stórtíðindi þar. Mörg ríki endurskoða nú fjármálaáætlanir og fjárlög til að bregðast við straumi flóttafólks frá Úkraínu en sú umræða er ekki einu sinni hafin hér á landi. Til að hægt sé að bregðast við á sómasamlegan hátt og koma í veg fyrir mikil vandræði til framtíðar þarf nauðsynlega að styrkja félagskerfin okkar verulega. Hér þarf húsnæði og stuðning, undirbúning fyrir skólastarf og íþróttastarf barna. Þetta reddast ekki bara. Ég kalla eftir áætlun um hvernig við getum staðið við okkar siðferðislegu skyldur með sem vönduðustum hætti nú þegar stríð geysar í Evrópu og sér ekki fyrir endann á því.
Að lokum vil ég lýsa þeirri skoðun minni að vistráðningar, eða Au-pair, er barn síns tíma. Við hjá verkalýðshreyfingunni höfum fengið of mörg hræðileg mál inn á borð til okkar sem tengjast vistráðningum til að réttlæta tilvist þessa fyrirkomulags. Þótt vissulega eigi fjölmargar fjölskyldur og einstaklingar góða reynslu af vistráðningum, þá nægir það ekki til að réttlæta hættuna á misnotkun sem í þessu ráðningaformi felst. Mál sem til okkar rata eru hrein og klár mansalsmál – mál þar sem fólk er gert út í launalausa vinnu við ömurlegar aðstæður. Nýlegar fréttir um unga konu frá Filippseyjum sem lendir í slíkum aðstæðum og að auki fullkomnu skilningsleysi kerfisins staðfestir þetta. Í meira en áratug hefur verið bent á að eigi vistráðningar áfram að vera við lýði þurfi með þeim virkt eftirlitskerfi. Þrátt fyrir fyrirheit hefur ekkert orðið af því. Nú er mál að linni.
Góða helgi,
Drífa