Á grafinu hér að neðan má sjá hve langt vöruverð verslana var að meðaltali frá lægsta verði. Ef einhver verslun hefði verið með lægsta verð á öllum vörum hefði hún fengið gildið 0% en 100% ef verðið væri tvöfalt hærra að meðaltali.
Af 127 vörum sem voru í könnuninni voru 99 til í bæði Bónus og Krónunni. Þar af voru 58 vörur einni krónu dýrari í Krónunni en Bónus. Hæsta verðið var oftast að finna í Iceland og næst oftast í Heimkaupum.
Minnstur verðmunur á te og kaffi og á mjólkurvöru
Innan vöruflokka var minnstur munur á hæsta og lægsta verði á te og kaffi, að meðaltali 23%, og mjólkurvörum, að meðaltali 27%
Mestur var munurinn í flokki ávaxta og grænmetis, að meðaltali 105%, en þar er miðað við kílóverð á flestum vörum. Til dæmis var aðeins 13% munur á lægsta og hæsta verði á hálfum lítra af rjóma, á meðan 60% munur var á lægsta og hæsta kílóverði á papriku.
Mikill verðmunur á vörum með sama vörumerki
Í mörgum tilfellum var mikill verðmunur á dósamat og þurrvöru, sælgæti og snakki og á ýmissi frosinni vöru, sem er athyglisvert í ljósi þess að um nákvæmlega sömu vörur er að ræða. Sem dæmi má nefna 67% verðmun á hæsta og lægsta verði á Mutti niðursoðnum tómötum, 56% verðmun á Ora túnfiski í olíu og 70% verðmun á 2 lítra vanillu Mjúkís frá Kjörís.
Verð á dósamat og þurrvöru var oftast lægst hjá Bónus, í 8 tilfellum, og í Fjarðarkaupum, í 7 tilfellum. Iceland átti oftast hæsta verðið á sælgæti og snakki en Fjarðarkaup oftast lægsta verðið.
108% munur á Kjarna jarðaberjagraut
Af öðrum athyglisverðum verðmuni í könnuninni má nefna:
- 108% mun á hæsta og lægsta verði á einum lítra af Kjarna Jarðaberjagraut. Lægst var verðið í Fjarðarkaup, 398 kr. en hæst í Heimkaupum, 829 kr.
- 101% mun á hæsta og lægsta verði á Stjörnu Partý paprikusnakki sem var dýrast í Iceland, 699 kr. en ódýrast í Fjarðarkaupum, 348kr.
- 329% mun á hæsta og lægsta kílóverði á hvítlauk. Hæst var verðið 3.369 krónur í Kjörbúðinni Sandgerði en lægst 729 krónur í Bónus.
- 91% mun á rúlluverði klósettpappírs. Hæst var verðið í Kjörbúðinni Sandgerði, 143 krónur, en lægst 75 krónur í Nettó.
Um könnunina
Ýmsar aðferðir eru til að varpa ljósi á niðurstöður í verðkönnunum með mörgum vörum og verslunum. Til að skýra betur verð hjá þeim verslunum sem eru hvorki oft með hæsta né lægsta verðið í verðkönnun og finna út meðalverð má reikna út hlutfallslegt frávik frá lægsta verði hverrar vöru. Þannig raðast verslanirnar eftir því hversu langt verð á vörum í könnuninni er að meðaltali frá lægsta verði.
Í könnuninni var hilluverð á 127 vörum skráð niður en það er það verð sem neytandinn hefur upplýsingar um þegar hann ákveður hvort hann ætli að kaupa viðkomandi vöru. Ef afsláttur er tekinn fram á hillu er hann tekinn til greina.
Könnunin var framkvæmd í eftirtöldum verslunum: Nettó Mjódd, Bónus Hraunbæ, Krónunni Selfossi, Fjarðarkaupum, Iceland Engihjalla, Hagkaup Skeifunni, Kjörbúðinni Sandgerði og á Heimkaup.is. Hér er aðeins um beinan verðsamanburð að ræða, en ekki er lagt mat á gæði eða þjónustu söluaðila.
Óheimilt er að vitna í könnunina í auglýsingum og við sölu nema með heimild ASÍ.