Stöndum með konum – stöðvum kynbundið ofbeldi !
Í dag, á alþjóðlegum baráttudegi gegn ofbeldi gagnvart konum, stöndum við með UNI Europa Commerce og öllum konum sem mæta ofbeldi, áreitni og mismunun – á vinnustað, heima og í samfélaginu.
Konur eru meirihluti starfsfólks í verslun og þjónustu á Íslandi og í Evrópu. Of margar mæta samt sem áður ofbeldi, kynferðislegri áreitni, hótunum og valdbeitingu frá viðskiptavinum, samstarfsfólki og yfirmönnum. Nýjar tæknilausnir, eins og sjálfsafgreiðslukassar, hafa aukið álagið – oft með því að færa ábyrgð á öryggi og eftirliti yfir á starfsfólk.
Við krefjumst þess að:
- Ísland staðfesti og innleiði samþykkt nr. 190 Alþjóðavinnumálastofnunarinnar (ILO) um ofbeldi og áreitni í atvinnulífinu.
- Fyrirtæki geri skýra verkferla og verndaráætlanir gegn áreitni og ofbeldi.
- Þolendur fái stuðning, trúnað og öruggar leiðir til að tilkynna ofbeldi.
Ofbeldi og áreitni á vinnustöðum eru vinnumarkaðsmál – ekki einkamál.
Saman getum við skapað vinnustaði þar sem allir njóta virðingar, öryggis og jafnréttis.
