Að gefnu tilefni viljum við minna félagsmenn okkar á nauðsyn þess að virða þær húsreglur sem gilda í orlofsbyggðum og fjölbýlishúsum en nokkuð hefur borið á því að kvartanir hafa borist vegna hávaða og partýhalds í íbúðum fjölbýlishússins í Sóltúni þar sem félögin eiga 2 íbúðir.
Við minnum á að brot á umgengnisreglum getur orðið til þess að félagsmaður lendir á svörtum lista og getur þá ekki leigt íbúð eða orlofshús, auk þess sem hann þarf að borga sekt.
Til áréttingar:
Eftir kl . 23:00 til kl. 07:00 má ekkert aðhafast er raskað getur svefnfriði annarra íbúa hússins.
Ef veislur standa lengur en til kl. 23:00 þá er mælt með að nágrannar séu látnir vita.
