Minnum á námskeiðin sem Aldan stéttarfélag og Verslunarmannafélag Skagafjarðar bjóða félagsmönnum sínum upp á og eru haldin í Farskólanum nú á haustönn.
Hér má sjá nánar hvaða námskeið eru í boði og skrá sig á þau.
Athugið að þessi námskeið skerða ekki einstaklingsrétt félagsmanna til að sækja um styrki í fræðslusjóði félaganna og eru félagsmönnum að kostnaðarlausu.
