Þann 17. mars nk. verður efnt til ráðstefnu á vegum Landsmenntar og Starfsafls, af því tilefni að liðin eru 10 ár frá því að sjóðirnir voru settir á stofn. Ráðstefnan verður haldin á Hótel Sögu og hefst kl. 14:00.
Í tilefni af 10 ára starfsafmæli Landsmenntar og Starfsafls bjóða sjóðirnir upp á ráðstefnu og afmælishóf á Hótel Sögu 17. mars nk. kl. 14:00-17:00
Hvar vorum við? Hvert stefnum við?
Dagskrá:
14:00-14:15 Upphaf og stofnun sjóðanna, Kolbeinn Gunnarsson, formaður Hlífar
14:15-14:35 Starfsafl og Landsmennt; Höfum við gengið til góðs? – Nýting sjóðanna; Kristín Njálsdóttir og Sveinn Aðalsteinsson
14:35-14:50 Viðhorf stéttarfélaga til fræðslu; Aðalsteinn Á. Baldursson, formaður Framsýnar stéttarfélags
14:50-15:05 Fyrirtækin og fræðslan: Reynsla Íslenska Gámafélagsins af þjónustu fræðslusjóðanna; Jón Þórir Frantzson, forstjóri ÍGF
15:05-15:20 Reynslusaga einstaklings, Berglind Freyja Búadóttir, nemandi í háskólabrú Keilis
15:20-15:35 Þýðing starfsmenntasjóðs fyrir fræðslu Norðuráls, Brian Daniel Marshall, fræðslustjóri Norðuráli Grundartanga ehf.
15:35-16:10 Pallborð; Framtíðarsýn og hlutverk fræðslusjóða. Þátttakendur: Jón Þórir Frantzson,forstjóri ÍGF, Sigurður Bessason, formaður Eflingar stéttarfélags, Auður Þórhallsdóttir, fræðslustjóri Samskipa, Hjördís Þ. Sigurþórsdóttir, formaður AFLS Starfsgreinafélags
16:10-17:00 Samvera og umræður ásamt tónlistaratriði