Félagsmönnum Öldunnar stéttarfélags og Verslunarmannafélags Skagafjarðar býðst gisting á Gistiheimilinu Sólgörðum á Akureyri. Tilboðið gildir til 30. maí.
Félagsmönnum Öldunnar stéttarfélags og Verslunarmannafélags Skagafjarðar býðst gisting á Gistiheimilinu Sólgörðum á Akureyri:
Morgunmatur er ekki innifalinn í verði. Eldhús og baðherbergi er sameiginlegt fyrir þrjú herbergi. Herbergin eru með uppbúnum rúmum, björt og rúmgóð og öll með sjónvarpi.
Félagsmenn sjá sjálfir um að panta gistinguna en greiða fyrir hana á Skrifstofu stéttarfélaganna fyrir brottför.
Gistiheimilið Sólgarðar, Brekkugötu 6, sími: 461 1133,
Eins manns herbergi: 2.500 krónur nóttin
Tveggja manna herbergi: 4.500 krónur nóttin
Þriggja manna herbergi: 6.000 krónur nóttin
Fjögurra manna herbergi: 7.500 krónur nóttin
Einnig geta félagsmenn fengið styrk að upphæð 2.500 krónur vegna hótelgistingar á Akureyri gegn framvísun reiknings hótels.