Alþýðusamband Íslands heldur opinn félagsfund með stjórnum og trúnaðarráðum allra aðildarfélaga þess á Norðurlandi vestra.
Fundurinn verður haldinn kl. 18:30 í kvöld á Mælifelli
Alþýðusamband Íslands heldur opinn félagsfund með stjórnum og trúnaðarráðum allra aðildarfélaga þess á Norðurlandi vestra.
Fundurinn verður haldinn kl. 18:30 á Mælifelli í kvöld.
Um opinn fund er að ræða og eru fundarmenn því hvattir til að taka með sér gesti úr röðum félagsmanna.
Boðið verður upp á kjötsúpu á fundinum.
Yfirskrift fundarins er kaupmáttur – atvinna – velferð.
Fundarefnið er þríþætt :
1. Áherslur ASÍ varðandi stöðu og þróun kjaramála og kaupmáttar launafólks með sérstakri áherslu á baráttuna við verðbólguna og stefnu og aðgerðir ASÍ í þeim efnum.
2. Áherslur ASÍ á auknar fjárfestingar og eflingu atvinnulífs eins og þær voru mótaðar á 40. þingi ASÍ í október sl.
3. Velferðarmálin með sérstakri áherslu á tillögur ASÍ varðandi nýtt húsnæðislánakerfi, auk þess sem fjallað verður um vinnu ASÍ að mótun félagslegs húsnæðiskerfis.