Skip to main content

Í ágúst sl. tók Hrafnhildur Guðjónsdóttir til starfa og eru ráðgjafar VIRK starfsendurhæfingar nú orðnir tveir á skrifstofu stéttarfélaganna.

Hrafnhildur Guðjónsdóttir er nýr ráðgjafi hjá stéttarfélögum á Norðvesturlandi.
Hún lauk gráðu til starfsréttinda í félagsráðgjöf frá Háskóla Íslands 2003 og náms- og starfsráðgjafaréttindi 2008. Hrafnhildur hefur starfað sem yfirfélagsráðgjafi hjá Fjölskylduþjónustu Skagafjarðar og fjölskyldudeildar Félagsþjónustu uppsveita Árnessýslu og Flóa.  Einnig starfaði hún í nokkur ár sem félagsráðgjafi Reykjavíkurborgar hjá þjónustumiðstöðinni Miðgarði í Grafarvogi og Barnavernd Reykjavíkur. Í síðasta starfi var hún verkefnisstjóri
Fléttunnar á Sauðárkróki og samhliða því vann hún sem verkefnastjóri í liðveislu við fatlað fólk í sjálfstæðri búsetu.


Ráðgjafar VIRK starfsendurhæfingar eru nú orðnir tveir á skrifstofu stéttarfélaganna en Hanna Dóra Björnsdóttir hóf störf í ágúst 2011.
Ráðgjafarnir eru með aðsetur á skrifstofu stéttarfélaganna í Borgarmýri 1 á Sauðárkróki en einnig með starfsstöðvar á Blönduósi, Hvammstanga og á Skagaströnd því starfssvæði þeirra nær frá Tröllaskaga til Hrútafjarðar og er því allur Skagafjörður og Húnavatnssýslur.
 


 

Close Menu

About Salient

The Castle
Unit 345
2500 Castle Dr
Manhattan, NY

T: +216 (0)40 3629 4753
E: hello@themenectar.com