Nú hafa orlofsmöguleikar félagsmanna aukist enn frekar því samið hefur verið við hótelið Lamb Inn á Öngulstöðum í Eyjafirði um sérstök kjör á gistingu fyrir félagsmenn Verslunarmannafélagsins.
Nú hafa orlofsmöguleikar félagsmanna aukist enn frekar því samið hefur verið við hótelið Lamb Inn á Öngulstöðum í Eyjafirði um sérstök kjör á gistingu fyrir félagsmenn Verslunarmannafélagsins.
Lamb Inn er hótel og veitingastaður í um 10 mínútna akstursfjarlægð frá Akureyri.
Herbergin eru með uppábúnum rúmum og hafa öll sér baðherbergi og auk þess er þar herbergi með góðri aðstöðu fyrir fatlaða.
Stutt er í golf að Þverá eða í sund á Hrafnagili, Kaffi Kú er steinsnar frá og margar fallegar gönguleiðir í nágrenninu og svo auðvitað Hlíðarfjall í 12 mínútna akstursfjarlægð.
Félagsmenn panta gistinguna sjálfir með því að hringja á hótelið eða senda þangað tölvupóst. Áður en lagt er af stað þarf að koma við á skrifstofu stéttarfélaganna, greiða fyrir gistinguna og taka með sér kvittun sem framvísað er á hótelinu.
Lamb Inn að Öngulstöðum í Eyjafjarðarsveit,
sími: 463 1500
netfang: lambinn@lambinn.is
Tveggja manna herbergi: 7.500 krónur nóttin
Fjögurra manna herbergi: 11.700 krónur nóttin
Aukarúm inn á herbergi : 2.000 krónur nóttin
Morgunmatur er innifalinn í verði.