Samkvæmt kjarasamningum ber atvinnurekendum að greiða starfsfólki álag á stórhátíðardögum og því er mikilvægt að halda vel utan um skráningu vinnutíma yfir jólin.
Samkvæmt kjarasamningum ber atvinnurekendum að greiða starfsfólki álag á stórhátíðardögum, en þeir jóladagar sem teljast stórhátíðardagar eru :
• aðfangadagur eftir kl. 12:00,
• jóladagur
• gamlársdagur eftir kl. 12:00 og
• nýársdagur
Annar í jólum telst auk þess almennur frídagur.
Öll vinna á stórhátíðardögum greiðist með tímakaupi, sem er 1,375% af mánaðarlaunum fyrir dagvinnu.
Fyrir yfirvinnu á öðrum frídögum skal greiða 80% álag á dagvinnutímakaup eða 1,0385% af mánaðarlaunum fyrir dagvinnu.
Í vaktavinnu skal greiða 55% vaktaálag á sérstökum frídögum
en 90% vaktaálag á stórhátíðardögum samkvæmt samningi
við ríki og sveitarfélög.