Í vikunni var haldið sameiginlegt þriggja daga námskeið í Blöndustöð fyrir trúnaðarmenn Verslunarmannafélags Skagafjarðar, Öldunnar stéttarfélags og stéttarfélagsins Samstöðu á Blönduósi.
Í vikunni var haldið sameiginlegt þriggja daga námskeið í Blöndustöð fyrir trúnaðarmenn Verslunarmannafélags Skagafjarðar, Öldunnar stéttarfélags og stéttarfélagsins Samstöðu á Blönduósi.
Tveir trúnaðarmenn fóru að þessu sinni frá Verslunarmannafélagi Skagafjarðar en það voru þær Erna Reynisdóttir trúnaðarmaður í KS Varmahlíð og Ólöf Sólveig Júlíusdóttir í Kaupfélagi Skagfirðinga. Einnig sat Hrefna G. Björnsdóttir, starfsmaður skrifstofu stéttarfélaganna, námskeiðið sem þótti takast með ágætum.