Vörukarfa ASÍ hefur hækkað hjá 11 verslunum frá því í desember 2014 (viku 48) þar til í lok febrúar (vika 9). Mesta hækkunin á þessu tímabili er hjá Víði, Kaupfélagi Skagfirðinga og 10/11. Á sama tímabili lækkar vörukarfan hjá Nettó.
Áhrif skattbreytinga á vörukörfuna
Vörukarfa ASÍ hefur hækkað hjá 11 verslunum frá því í desember 2014 (viku 48) þar til í lok febrúar (vika 9). Mesta hækkunin á þessu tímabili er hjá Víði, Kaupfélagi Skagfirðinga og 10/11. Á sama tímabili lækkar vörukarfan hjá Nettó. Í heildina er það mat verðlagseftirlitsins að breytingar á virðisaukaskatti og vörugjöldum gefi tilefni til hækkunar á verði matarkörfu meðalheimilis um u.þ.b. 1,5% en þegar innihald matarkörfunnar er skoðað nánar eru áhrifin á einstaka vöruflokka mjög misjöfn.
Um áramótin var virðisaukaskattur á mat- og drykkjarvörur hækkaður úr 7% í 11% auk þess sem vörugjöld voru feld niður (s.k. sykurskattur) af sykri og sætum mat- og drykkjarvörum. Breytingin um áramótin gefur því að hámarki tilefni til 3,7% hækkunar á matvöru en áhrifin á verði þeirra matvara sem innhalda sykur eða sætuefni ráðast af því hversu mikinn sykur varan inniheldur. Almennt má því segja að þeim mun sætari sem varan er þeim mun þyngra vegur afnám vörugjaldanna í verðinu og þeim mun meira ætti varan að lækka í verði.
Á þessu tímabili má sjá verðbreytingar í öllum vöruflokkum bæði hækkanir og lækkanir t.d. hafa vöruflokkarnir mjólkurvörur ostar og egg; brauð og kornvörur almennt hækkað meira en skýrist af breytingum á vsk. og vörugjöldum í verslunum, þar sem mikið af þeim vörum í þessum vöruflokkum báru sykurskatt sem nú hefur verið afnumin. Í vöruflokknum sykur, súkkulaði, sælgæti og fl. eru aðeins 4 verslanir sem hafa skilað nánast fullum lækkunum en það eru Bónus, Krónan, Nettó og Kaskó. Drykkjarvöruflokkurinn ætti að lækka í öllum verslunum, en 4 verslanir hækka, en það eru Iceland, 10/11, Víðir og Kaupfélag Skagfirðinga.
Eins og sjá má á meðfylgjandi súluriti hafa 11 verslanir hækkað verð og það meira en skýrist af breytingunum, en verðlagseftirlitið gerði ráð fyrir að verð á vörukörfunni fyrir meðalheimili myndi hækka u.þ.b um 1,5%. Mesta hækkunin er 4,4% hjá Víði, 3,5% hjá 10/11, 3,4% hjá Kaupfélagi Skagfirðinga, 3% hjá Hagkaupum og Samkaupum-Úrval, 2,9% hjá Samkaupum-Strax, 2,3% hjá Iceland, um 1-1,5% hjá Nóatúni, Bónus og Kaupfélagi Vestur-Húnvetninga. En vörukarfan lækkar um 1,2% hjá Nettó og og stendur nánast í stað hjá Krónunni og Kaskó.
Í meðfylgjandi töflu má sjá hvernig afnám sykurskattsins skilar sér til neytenda. Byrjum á að skoða vöruflokkinn drykkjarvörur, en þar hafa aðeins 9 af 13 verslunum lækkað verðið en verðlagseftirlitið áætlaði að þessi vöruflokkur myndi lækka u.þ.b. um 2,5%, mesta lækkunin er 10,6% hjá Kaskó, 7,4% hjá Nettó, 5% hjá Hagkaupum 4,8% hjá Krónunni og 3,9% hjá Bónus en minna hjá Nóatúni, Samkaupum-Úrval, Samkaupum-Strax og Kaupfélagi Vestur-Húnvetninga. En vöruflokkurinn er að hækka hjá Iceland, 10/11, Víði og Kaupfélagi Skagfirðinga.
Verðlagseftirlitið áætlaði að vöruflokkurinn sætindi ætti að lækka u.þ.b. um 10% vegna afnáms sykurskatts en eru það aðeins Bónus, Krónan, Nettó og Kaskó sem lækka í takt við áætlun verðlagseftirlitsins. Í verslunum Iceland, 10/11 og Samkaupum-Strax hefur vöruflokkurinn hækkað í verði.
Samkvæmt áætlun verðlagseftirlitsins ætti vöruflokkurinn mjólkurvörur, ostar og egg ekki að hækka meira en 2,5% en aðeins Bónus, Krónan, 10/11 og Kaupfélag Skagfirðinga eru við eða undir því marki.
Þegar rýnt er í vöruflokkinn brauð og kornvörur má benda neytendum á að hann inniheldur töluverðan sykur og sætuefni; t.d. brauð, kökur og morgunkorn. Áætlun verðlagseftirlitsins var að vöruflokkurinn ætti ekki að hækka um mikið meira en 2%, flestar verslanirnar hækka meira en það. Aðeins Samkaup-Úrval hækkar aðeins um 1% og í verslunum Krónunnar og Kaskó hefur vöruflokkurinn lækkað í verði.
Verðlagseftirlitið mælir breytingar á verði vörukörfu sem getur endurspeglað almenn innkaup meðalheimilis. Vörukarfa ASÍ inniheldur allar almennar matar- og drykkjarvörur, t.d. brauðmeti, morgunkorn, pasta, kjöt, fisk, grænmeti, ávexti, pakkavörur, kaffi, gos, safa, auk hreinlætis- og snyrtivara. Við samsetningu vörukörfunnar voru hafðar til hliðsjónar vogir Hagstofunnar sem notaðar eru til útreiknings á vísitölu neysluverðs. Vogirnar segja til um hversu stór hluti tilteknir vöruflokkar eru af neyslukörfu meðalheimilis.
Verðbreytingar voru skoðaðar í eftirfarandi verslunum: Í lágvöruverðsverslununum Bónus, Krónunni, Nettó og Iceland; í almennu matvöruverslununum Hagkaupum, Nóatúni og Samkaupum-Úrvali, Tíu-ellefu, Samkaupum-Strax og Víði; í verslunum staðsettum á landsbyggðinni Kaskó, Kaupfélagi Skagfirðinga og Kaupfélagi Vestur-Húnvetninga. Því miður var ekki hægt að framkvæma könnun í Kjarval að þessu sinni.
Þess ber að geta að hér eru einungis birtar upplýsingar um verðbreytingar milli verðmælinga. Ekki er því um beinan verðsamanburð að ræða þ.e.a.s. hvar ódýrustu vörukörfuna var að finna. Einnig er rétt að athuga að skoðuð eru þau verð sem eru í gildi í verslununum á hverjum tíma og geta tilboð á einstaka vöruliðum því haft áhrif á niðurstöðurnar.
Óheimilt er að vitna í niðurstöðurnar í auglýsingum og við sölu nema með heimild ASÍ.