Forsvarsmenn samninganefnda VR, LÍV, Flóabandalagsins, StéttVest og Samtaka atvinnulífsins hafa náð samkomulagi um fimm sólarhringa frestun verkfallsaðgerða sem hefjast áttu þann 28. maí næstkomandi.
Forsvarsmenn samninganefnda VR, LÍV, Flóabandalagsins, StéttVest og Samtaka atvinnulífsins hafa náð samkomulagi um fimm sólarhringa frestun verkfallsaðgerða sem hefjast áttu þann 28. maí næstkomandi.
Ekki verður upplýst um einstaka efnisþætti viðræðna hjá aðilum fyrr en gengið hefur verið frá drögum að samningi sem lögð verða fyrir samninganefndir félaganna. Stefnt er að því að niðurstaða liggi fyrir eigi síðar en 28. maí næstkomandi.
Eftirfarandi er skipulag verkfallsaðgerða að teknu tilliti til frestunar um fimm sólarhringa :
2. og 3. júní Hópbifreiðafyrirtæki
frá kl. 00:00 2. júní til kl. 24:00 3. júní
4. og 5. júní Hótel, gististaðir og baðstaðir
frá kl. 00:00 4. júní til kl. 24:00 5. júní
5. og 6. júní Flugafgreiðsla
frá kl. 00:00 5. júní til kl. 24:00 6. júní
7. og 8. júní Skipafélög og matvöruverslanir
frá kl. 00:00 7. júní til kl. 24:00 8. júní
9. og 10. júní Olíufélög
frá kl. 00:00 9. júní til kl. 24:00 10. júní
Ótímabundið allsherjarverkfall hefst kl. 00:00 þann 11. júní 2015