Næstkomandi fimmtudag verður haldinn opinn kynningarfundur þar sem kynntir verða nýgerðir kjarasamningar fyrir félagsmenn Öldunnar sem starfa á almennum vinnumarkaði og félagsmenn Verslunarmannafélags Skagafjarðar.
Næstkomandi fimmtudag verður haldinn opinn kynningarfundur þar sem kynntir verða nýgerðir kjarasamningar fyrir félagsmenn Öldunnar sem starfa á almennum vinnumarkaði og félagsmenn Verslunarmannafélags Skagafjarðar. Fundurinn verður haldinn á Mælifelli og hefst hann kl. 18:00.
Á næstu dögum munu félagsmenn kjósa um kjarasamninginn og eru því hvattir til að mæta á fundinn og kynna sér innihald samningsins.
Boðið verður upp á súpu á fundinum.