Samninganefndir Starfsgreinasambandsins og Flóabandalagsins funduðu með samninganefnd ríkisins í Karphúsinu síðastliðinn mánudag til að ganga frá nýjum kjarasamningi milli aðila. Að beiðni samninganefndar ríkisins var undirritun
samningsins hins vegar frestað um eina viku.
Samninganefndir Starfsgreinasambandsins og Flóabandalagsins funduðu með samninganefnd ríkisins í Karphúsinu síðastliðinn mánudag til að ganga frá nýjum kjarasamningi milli aðila. Að beiðni samninganefndar ríkisins var undirritun samningsins hins vegar frestað um eina viku.
Ástæðan er sú að næstkomandi föstudag mun svonefndur Salek-hópur (fulltrúar stærstu heildarsamtaka á vinnumarkaði) funda og vill ríkið bíða eftir niðurstöðu þess fundar. Að sögn ríkisins hefur þessi frestun engar efnislegar breytingar í för með sér.