Ný vefsíða og myndbönd
Alþýðusamband Íslands stendur í samstarfi við aðildarsamtök sín að verkefni gegn undirboðum á vinnumarkaði og svartri atvinnustarfsemi með yfirskriftinni Einn réttur – ekkert svindl! Verkefnið er tvískipt, annars vegar beinist það að brotum gagnvart erlendu vinnuafli og hins vegar brotum á ungu fólki en báðir eiga þessir hópar sammerkt að vera illa upplýstir um rétt sinn á vinnumarkaði.
Alþýðusamband Íslands stendur í samstarfi við aðildarsamtök sín að verkefni gegn undirboðum á vinnumarkaði og svartri atvinnustarfsemi með yfirskriftinni Einn réttur – ekkert svindl! Verkefnið er tvískipt, annars vegar beinist það að brotum gagnvart erlendu vinnuafli og hins vegar brotum á ungu fólki en báðir eiga þessir hópar sammerkt að vera illa upplýstir um rétt sinn á vinnumarkaði. ASÍ hefur reynt að nálgast erlenda hópinn með dreifimiðum og plakötum, m.a. í matvöruverslunum, en yngri hópinn með nýrri vefsíðu og myndböndum sem ætlað er að vekja ungt fólk til umhugsunar um réttindi þeirra og skyldur á vinnumarkaði.