Kosningu um ótímabundið verkfall sjómanna lýkur á hádegi þann 17.október næstkomandi og þeir sjómenn sem ekki hafa kosið hafa því viku til að skila atkvæði sínu. Kosningaþátttaka er enn innan við 50% og við hvetjum sjómenn því eindregið til að nýta atkvæðisrétt sinn og drífa sig í að kjósa.