Minnum á aðalfund félagsins sem haldinn verður á Gott í gogginn á morgun, miðvikudaginn 8.mars kl. 18:00. Félagsmenn eru hvattir til að mæta.
Dagskrá fundarins er svohljóðandi:
- Fundarsetning
- Kosning fundarstjóra
- Skýrsla stjórnar fyrir árið 2016
- Reikningar ársins 2016
- Stjórnarkjöri lýst
- Kosning tveggja félagslegra skoðunarmanna og eins til vara
- Kosning til annarra stjórna, nefnda og ráða
- Kosning tveggja manna í kjörstjórn og tveggja til vara
- Ákvörðun félagsgjalda
- Kosning endurskoðanda félagsins
- Kosning fulltrúa á ársfund Stapa lífeyrissjóðs
- Önnur mál
Reikningar ársins 2016 liggja frammi á skrifstofu félagsins að Borgarmýri 1.
Veitingar í boði félagsins.