Minnum á aðalfund félagsins sem haldinn verður á Mælifelli kl. 18 á morgun, miðvikudaginn 19.mars. Félagsmenn eru hvattir til að mæta.
Aðalfundur Öldunnar stéttarfélags verður haldinn á Mælifelli, Aðalgötu 7, miðvikudaginn 19. mars 2014 og hefst hann kl. 18.00.
Dagskrá fundarins er svohljóðandi:
1. Fundarsetning
2. Kosning fundarstjóra
3. Skýrsla stjórnar fyrir árið 2013
4. Reikningar ársins 2013
5. Stjórnarkjöri lýst
6. Kosning tveggja félagslegra skoðunarmanna og eins til vara
7. Kosning til annarra stjórna, nefnda og ráða
8. Kosning tveggja manna í kjörstjórn og tveggja til vara
9. Ákvörðun félagsgjalda
10. Kosning fulltrúa á ársfund Stapa lífeyrissjóðs
11. Önnur mál
Veitingar í boði félagsins.
Félagar eru hvattir til þess að mæta
Stjórn Öldunnar stéttarfélags