Skip to main content

Verðlagseftirlit ASÍ kannaði verð á 68 algengum lyfjum sem seld eru án lyfseðils i apótekum víðsvegar á landinu mánudaginn 3. nóvember 2014. Farið var í 21 apótek en Árbæjarapótek og Apótek Ólafsvíkur neituðu þátttöku í könnuninni. Verðmunur á lausasölulyfjum var frá 18% upp í 89%, en oftast var fjórðungs til helmings verðmunur á hæsta og lægsta verði.

Verðlagseftirlit ASÍ kannaði verð á 68 algengum lyfjum sem seld eru án lyfseðils i apótekum víðsvegar á landinu mánudaginn 3. nóvember 2014. Farið var í 21 apótek en Árbæjarapótek og Apótek Ólafsvíkur neituðu þátttöku í könnuninni. Verðmunur á lausasölulyfjum var frá 18% upp í 89%, en oftast var fjórðungs til helmings verðmunur á hæsta og lægsta verði. Lægsta verðið var oftast að finna hjá Lyfjaveri Suðurlandsbraut eða í 24 tilvikum af 68 og Garðs Apóteki Sogavegi í 22 tilvikum. Hæsta verðið var oftast að finna hjá Lyfju Ísafirði eða í 19 tilvikum af 68 og hjá Lyfsalanum Álfheimum í 16 tilvikum.

Mestur verðmunur í könnuninni var á 15 stk. af Ovestin hormóni sem var dýrast á 2.443 kr. hjá Apóteki Vesturlands en ódýrast á 1.290 kr. hjá Siglufjarðar Apóteki sem er 1.153 kr. verðmunur eða 89%. Minnstur verðmunur í könnuninni var á Nicorette Invisibel forðaplástri (7 stk. 25 mg./16 klst.) sem var dýrastur á 4.135 kr. hjá Lyf og heilsu Hveragerði en ódýrastur á 3.490 kr. hjá Garðs Apóteki sem er 645 kr. verðmunur eða 18%.

Af öðrum algengum lausasölulyfjum sem til eru hjá öllum söluaðilum má nefna verkjalyfið Pinex junior (250 mg. – 10 stk.) sem var dýrast á 469 kr. hjá Lyfju en ódýrast á 354 kr. hjá Apótekinu Hólagarði, sem er 32 % verðmunur. Neyðargetnaðarvörnin Postinor (1 stk. 1,5 mg.) var dýrust á 3.140 kr. hjá Lyfju en ódýrust á 1.660 kr. hjá Apóteki Suðurnesja sem er 1.480 kr verðmunur eða 89%. Frunsukremið Vectavir (1%, 2 gr.) var dýrast á 1.708 kr. hjá Lyfsalanum Álfheimum en ódýrast á 1.230 kr. hjá Garðs Apóteki sem er 39% verðmunur. Endaþarmslausnin Microlax (5 ml. 4 stk.) var dýrust á 1.433 kr. hjá Lyfju en ódýrust á 1.060 kr. hjá Lyfjaveri sem er 35% verðmunur.     

Athygli vekur að lyfsölukeðjur sem ætla mætti að í krafti stærðarhagkvæmni gætu boðið upp á hagstæðari verð en smærri aðilar á markaði eru ekki að gera það. Verðlagseftirlitið vill hvetja neytendur til að spyrja um samheitalyf, sem gætu verið á hagstæðara verði og athuga með afsláttakjör.

Sjá nánar í töflu á heimasíðu ASÍ.

Könnunin var gerð í eftirtöldum apótekum: Apóteki Hafnarfjarðar, Tjarnarvöllum 11; Apótekaranum Hafnarstræti 95, Akureyri; Apótekinu Hólagarði, Lóuhólum 2-6; Garðs Apóteki, Sogavegi 108; Lyf og heilsa Hveragerði; Borgar Apóteki, Borgartúni; Lyfju Ísafirði; Lyfjavali Álftamýri, Álftamýri 1-5; Lyfjaveri, Suðurlandsbraut 22; Reykjavíkur Apóteki, Seljavegi 2; Rima Apóteki, Langarima 21; Skipholts Apóteki, Skipholti 50B; Urðarapóteki, Vínlandsleið 16; Akureyrarapóteki, Kaupangi við Mýrarveg; Apóteki Vesturlands, Smiðjuvöllum 32, Akranesi; Siglufjarðar Apóteki, Norðurgötu 4B; Apóteki Garðabæjar, Litlatúni 3; Apóteki Suðurnesja, Reykjanesbæ; Gamla apótekinu Melhaga 20-22; Lyfsalanum, Álfheimum 74; Austurbæjar Apóteki, Ögurhvarfi 3.

Árbæjarapótek og Apótek Ólafsvíkur neituðu eins og áður segir þátttöku í könnuninni.

Hér er aðeins um beinan verðsamanburð að ræða en ekki er lagt mat á gæði eða þjónustu söluaðila.

Óheimilt er að vitna í þessa könnun í auglýsingum og við sölu nema með heimild ASÍ.

Close Menu

About Salient

The Castle
Unit 345
2500 Castle Dr
Manhattan, NY

T: +216 (0)40 3629 4753
E: hello@themenectar.com