Ódýrustu páskaeggin er að finna í Prís samkvæmt nýrri úttekt verðlagseftirlits ASÍ. Þar hækka þau jafnframt einna minnst í verði milli ára. Verð á páskaeggjum merktum Bónus hækkar mest milli ára og líka ef borið er saman við árið 2024. Gjarnan geta neytendur gert betri kaup í stærri páskaeggjum sem eru iðulega með lægsta kílóverðið. Í þessu tilfelli var lægsta kílóverðið ekki að finna á stóru páskaeggi, heldur á Okkar eggi númer 4, 250 gr. í Prís.
Verð á páskaeggjum í Prís og Fjarðarkaupum hækkaði að meðaltali um minna en 1% milli ára, en hækkaði um 9% í Bónus, Krónunni og Nettó og um 10% í Hagkaup.
Mesta úrvalið af páskaeggjum var að finna í vefverslun Krónunnar, þar sem mátti finna 53 páskaegg. Í Kjörbúðinni og Extra var úrvalið minnst, eða 7 páskaegg í hvorri verslun þegar verðlagseftirlitið for á vettvang. Í Krambúðinni fundust 12 páskaegg, 41 í Prís, 43 í Fjarðarkaupum, 47 í Bónus, 48 í Nettó og 53 í Hagkaup.
Páskaeggin ódýrust í Prís
Lægsta verð páskaeggja var að jafnaði að finna í Prís og voru þau næst ódýrust í Bónus þar sem verðið var að meðaltali 4% hærra. Í öllum tilfellum kostuðu páskaegg í Krónunni einni krónu meira en í Bónus. Í Fjarðarkaupum var verð páskaeggja það sama og í Krónunni í 26 af 39 tilfellum.
Lægsta kílóverð á einstökum páskaeggjum var á Okkar eggi númer 4 í Prís, en það kostaði 1.099kr og vegur 250gr. Í fyrra voru bestu kaupin á stórum eggjum, en þau eru nú í öðru sæti (Góu páskaegg nr. 11 í Prís) og þriðja sæti (Bónus risaegg). Neytendum er bent á að finna má nýjustu tölur og vörulista í heild sinni á Verðlagseftirlit.is.
Mestar hækkanir á Bónus eggjum milli ára
Verð páskaeggja hefur hækkað mismikið eftir framleiðendum. Ef verð eru borin saman við verðin 2024 hefur verð á Bónus páskaeggjum hækkað mest, eða um 37%, en verð á páskaeggjum Nóa Síríus hækkað minnst, um 13%. Bónus páskaegg eru framleidd af Góu, en Góu-egg hækkuðu að meðaltali um 31%. Sanbó egg hafa hækkað um 33% á sama tímabili, en verðið hefur staðið frá árinu 2025.
SJÁ NÁNAR Á HEIMASÍÐU ASÍ
Um könnunina
Borið var saman meðalverð páskaeggja milli mars 2024, mars 2025 og mars 2026. Í samanburði á verðbili milli Prís og Bónus annars vegar og Krónunnar og Bónus hins vegar var skoðað verð fimmtudagsins 19. mars. Í samanburði á verði í Fjarðarkaupum og Krónunni var skoðað verð laugardagsins 21. mars. Lægsta kílóverð var byggt á verðtöku 19. mars, utan verðpunkts í Fjarðarkaupum sem var mældur 21. mars. Verð páskaeggja getur hreyfst talsvert í aðdraganda páska, hægt er að skoða nýjustu tölur verðlagseftirlitsins á verdlagseftirlit.is.
