Skip to main content

Stjórnir þriggja fræðslusjóða sem félagið er aðili að; Landsmennt, Ríkismennt og Sveitamennt, hafa samþykkt hækkanir á einstaklingsstyrkjum úr sjóðunum. Engar breytingar hafa þó verið gerðar á styrkjum vegna meiraprófs eða tómstundanámskeiða.

Stjórnir þriggja fræðslusjóða sem félagið er aðili að; Landsmennt, Ríkismennt og Sveitamennt, hafa samþykkt eftirfarandi hækkanir á einstaklingsstyrkjum úr sjóðunum :

 

Landsmennt
Stjórn Landsmenntar hefur samþykkt að hækka hámarksupphæð einstaklingsstyrkja í 70.000 kr. frá og með 1. júlí nk. Upphæð styrkja er miðuð við greidd iðgjöld síðustu 12 mánaða en hægt er að fá styrk (þá lægri) eftir 6 mánaða aðild. Styrkur getur þó aldrei orðið hærri en 70.000 kr eða mest 75% kostnaðar. 

Hækkun á geymdum rétti (uppsafnaður réttur) er eftirfarandi:
• 2015 verður hægt að taka út kr. 190.000.- fyrir eitt samfellt nám/námskeið. Ferðakostnaður vegna náms getur að hámarki orðið kr. 70.000.- (nær til náms sem hefst eftir 1.júlí 2015)
• 2016 verður hægt að taka út kr. 200.000.- og 2017 verði upphæðin orðin 210.000.-
Ekki hefur verið gerð breyting á styrkjum til meiraprófs eða til tómstundanámskeiða.
Hækkunin nær til þess náms sem hefst eftir 1. júlí 2015.

Ríkismennt
Stjórn Ríkismenntar hefur samþykkt að hækka hámarksupphæð einstaklingsstyrkja í 75.000 kr. f.o.m. 1. júní 2015. Upphæð styrkja er miðuð við greidd iðgjöld síðustu 12 mánaða en hægt er að fá styrk (þá lægri) eftir 6 mánaða aðild. Styrkur getur þó aldrei orðið hærri en 75.000 kr eða mest 75% kostnaðar.
Hækkun á geymdum rétti (3ja ára) verður til samræmis við þessa hækkun kr. 225.000.-
Hækkunin nær til náms/námskeiða sem hefjast eftir 1. júní 2015. 
Engin breyting er á styrkjum til meiraprófs eða styrkum til tómstundanámskeiða.

Sveitamennt
Stjórn Sveitamenntar hefur samþykkt að hækka hámarksupphæð einstaklingsstyrkja í 75.000 kr. frá og með 1. júní sl. Upphæð styrkja er miðuð við greidd iðgjöld síðustu 12 mánaða en hægt er að fá styrk (þá lægri) eftir 6 mánaða aðild. Styrkur getur þó aldrei orðið hærri en 75.000 kr eða mest 75% kostnaðar.
Hækkun á geymdum rétti (3ja ára) verður til samræmis við þessa hækkun kr. 225.000.-
Hækkunin nær til náms/námskeiða sem hefjast eftir 1. júní 2015. 
Engin breyting er á styrkjum til meiraprófs eða styrkum til tómstundanámskeiða.

 

Close Menu

About Salient

The Castle
Unit 345
2500 Castle Dr
Manhattan, NY

T: +216 (0)40 3629 4753
E: hello@themenectar.com