Á morgun, föstudag, hefst kosning um kjarasamning SGS og SA og stendur hún til 23.apríl nk. Kynningarefni er á leiðinni til félagsmanna í pósti en einnig má kynna sér efni samningsins hér.
Kynningarefni um samninginn er nú á leið til félagsmanna í pósti en atkvæðagreiðsla um samningana hefst á morgun og stendur til 23.apríl nk.
Við hvetjum félagsmenn til að kynna sér efnið vel.
Í nýjasta hlaðvarpsspjalli ASÍ fara hagfræðingarnir Henný Hinz og Róbert Farestveit yfir helstu atriði kjarasamninganna sem undirritaðir voru 3. apríl. Hér má hlusta á viðtalið
Hér má nálgast allar helstu upplýsingar um samninginn
Félagsmenn, nýtið atkvæðisréttinn ykkar og takið þátt í atkvæðagreiðslunni.
Hvert atkvæði skiptir máli !