Málþing matvælasviðs SGS
Matvælasvið Starfsgreinasambands Íslands gengst fyrir málþingi um landbúnaðarmál á Íslandi, stöðu greinarinnar og tækifæri, mánudaginn 26. apríl 2010 að Hótel Selfossi. Málþingið, mun leitast við að svara spurningum um það hvers virði íslenskur landbúnaður er í atvinnusköpun á Íslandi og hvað þurfi til að fjölga störfum í greininni og gera þau verðmeiri.

Dagskrá:
Kl. 11:00 Málþingið sett af Kristjáni Gunnarssyni formanni SGS.
Kl. 11.10 Ávarp landbúnaðarráðherra, Jóns Bjarnasonar.
Kl. 11:25 Samspil landbúnaðar og ferðaþjónustu . Skúli Thoroddsen framkvæmdastjóri SGS.
Kl. 12:00 Bragð að íslenskum landbúnaði . Hádegisverður að Hótel Selfossi.
Kl. 13.00 Verðmæti landbúnaðarins og styrkjakrefið. Sigurður Jóhannsson, hagfræðingur, Hagfræðistofnun HÍ.
Kl. 13:20 Hvernig aukum við verðmætin í íslenskum landbúnaði? Sjöfn Sigurgísladóttir, forstjóri Matís.
Kl. 13:45 Treystum á landbúnaðinn. Haraldur Benediksson, formaður Bændasamtaka Íslands.
Kl. 14:20 Sóknarfærin. Georg Ottósson – Flúðasveppir.
Kl. 14:40 Sóknarfærin. Knútur Rafn Ármann – Friðheimum Reykholti.
Kl. 15:10 Hvers virði er landbúnaðurinn? Umræður þátttakenda.
Kl. 15:50 Málþingsslit. Björn Snæbjörnsson, formaður Einingar- Iðju og varaformaður SGS
Kaffi og kaka í boði SGS.
Eftir hverja framsögu eru fyrirspurnir og stuttar umræður. Ekkert þátttökugjald er á málþinginu.
Halldóra Sveinsdóttir, sviðstjóri matvælasviðs SGS stýrir málþinginu.