Rafræn atkvæðagreiðsla um nýgerða kjarasamninga við Samtök atvinnulífsins hefst kl. 9:00 á morgun og lýkur henni kl. 12:00 mánudaginn 15. apríl.
Rafræn atkvæðagreiðsla um nýgerða kjarasamninga við Samtök atvinnulífsins hefst kl. 9:00 á morgun og lýkur henni kl. 12:00 mánudaginn 15. apríl.
Kosning fer fram hér á heimasíðu félagsins (hér fyrir neðan eða á forsíðu) en innskráning á kjörseðil er með Íslykli eða rafrænum skilríkjum. Hægt er að sækja um Íslykil á island.is
Hér má nálgast kynningarefni um samninginn.
Smelltu hér til að hlusta á stutt hlaðvarpsspjall um helstu atriði kjarasamninganna en það eru þau Henný Hinz og Róbert Farestveit, hagfræðingar ASÍ, sem fara þar yfir málin.
Félagsmenn: kynnið ykkur samninginn, nýtið atkvæðisréttinn og takið þátt í atkvæðagreiðslunni.
Hvert atkvæði skiptir máli !
Ýttu á bláa kassann hér fyrir neðan til að kjósa.