Hvað eru stéttarfélögin að gera?
ASÍ-UNG efna til pallborðsumræðu um áhrif #Metoo byltingarinnar innan vinnumarkaðsins og aðgerðir stéttarfélaga í þeim málum, þriðjudaginn 6. febrúar kl.20.00 í Stúdentakjallaranum.
ASÍ-UNG efna til pallborðsumræðu um áhrif #Metoo byltingarinnar innan vinnumarkaðsins og aðgerðir stéttarfélaga í þeim málum, þriðjudaginn 6. febrúar kl.20.00 í Stúdentakjallaranum.
#Metoo byltingin hefur verið mikið í umræðunni undanfarið bæði hér á landi og um allan heim.
ASÍ-UNG langar að fá ólík sjónarmið að borðinu og bjóða upp á vettvang fyrir spurningar frá gestum úr ýmsum áttum.
Í pallborði verða:
María Rut Kristinsdóttir, sérfræðingur hjá Dómstólaráðuneytinu
Drífa Snædal, framkvæmdastýra Starfsgreinasambandsins
Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR
Maríanna Traustadóttir, sérfræðingur frá ASÍ
Eiríkur Þór Theódórsson, frá ASÍ-UNG.
Fundarstjóri er Halldór Oddsson, lögfræðingur hjá ASÍ.
ASÍ-UNG eru samtök ungs launafólks innan Alþýðusambands Íslands. Sjá nánar hér: https://www.facebook.com/asi.unglidar/