Skip to main content

Verðlagseftirlit ASÍ gerði verðsamanburð á fiskafurðum í 25 fiskbúðum og öðrum verslunum með fiskborð, víðsvegar um landið sl. miðvikudag. Kannað var verð á 33 algengum tegundum fiskafurða. Í um 70% tilvika var verðmunurinn á hæsta og lægsta að lágmarki 50%.

Verðlagseftirlit ASÍ gerði verðsamanburð á fiskafurðum í 25 fiskbúðum og öðrum verslunum með fiskborð, víðsvegar um landið sl. miðvikudag. Kannað var verð á 33 algengum tegundum fiskafurða. Í um 70% tilvika var munurinn á hæsta og lægsta verði að lágmarki 50%. Fiskbúðin Hafberg, Fiskikóngurinn, Fiskbúðin Vegamót Nesvegi og Fiskbúðin Vík Reykjanesbæ neituðu þátttöku í könnuninni.

Lægsta verðið var oftast að finna hjá Litlu Fiskbúðinni Miðvangi Hafnarfirði eða í 14 tilvikum af 33 og hjá Litlu Fiskbúðinni Háaleitisbraut í 9 tilvikum. Verslunin Kjöt og fiskur Bergstaðastræti var með hæsta verðið í 6 tilvikum af 33 og Melabúðin, Hafið fiskiprinsinn Hlíðarsmára og Gallerý fiskur Nethyl voru með hæsta verðið í 4 tilvikum. Aðeins Fiskbúð Sjávarfangs Ísafirði átti til allar tegundirnar sem skoðaðar voru í könnuninni en þar á eftir komu Litla fiskbúðin Háaleitisbraut og Gallerý fiskur sem áttu til 30 tegundir. Fæstar tegundirnar sem skoðaðar voru, voru til hjá Fiskbúðinni Sjávarhöllin Hólagarði eða aðeins 9 tegundir af 33 og Samkaup-Úrval Hafnarfirði átti 12 tegundir.

Munur á hæsta og lægsta verði í könnuninni var frá 24% upp í 153%. Mestur verðmunur í könnuninni var á súrum hval sem var dýrastur á 3.763 kr./kg. hjá Fiskbúð Sjávarfangs, en ódýrastur á 1.490 kr./kg. hjá Litlu fiskbúðinni Háaleitisbraut en það er 2.273 kr. verðmunur eða 153%.
 Minnstur verðmunur var á roðflettu og beinlausu ýsuflaki sem var ódýrast á 1.690 kr./kg. hjá Litlu fiskbúðinni Miðvangi en dýrast á 2.090 kr./kg. hjá Hagkaupum Kringlunni og Kjöt og fisk, en það er 400 kr. verðmunur eða 24%.

Af öðrum tegundum sem í boði voru má nefna að beinlaus laxaflök voru ódýrust á 1.949 kr./kg. hjá Nettó Granda en dýrust á 2.998 kr./kg. hjá Þinni Verslun Seljabraut og Melabúðinni sem gerir 54% verðmun. Einnig má benda á að reykt ýsuflök voru ódýrust á 1.590 kr./kg. hjá Litlu fiskbúðinni en dýrust á 2.590 kr./kg. hjá Gallerý fisk sem gerir 63% verðmun.

Sjá nánar í töflu á heimasíðu ASÍ.

Könnunin var gerð í eftirtöldum verslunum: Fiskbúðinni Sundlaugavegi, Kjöt og fisk Bergstaðarstræti, Þinni verslun Seljabraut, Fisk kompaní Akureyri, Fiskbúð Suðurlands Selfossi, Melabúðinni, Fiskbúðinni Hafrúnu Skipholti, Fiskbúðinni Fiskás Hellu, Samkaupum Úrval Hafnarfirði, Nettó Granda,  Fjarðarkaupum Hafnarfirði, Fiskbúðinni Trönuhrauni, Fiskbúðin Sjávarhöllin Hólagarði, Fiskbúðinni Vík Reykjanesbæ, Ship O Hoj Reykjanesbæ, Litlu Fiskbúðinni Miðvangi og Háaleitisbraut, Hafinu fiskverslun Hlíðasmára, Nóatúni Háaleitisbraut, Fiskbúð Hólmgeirs Þönglabakka, Gallerý fisk Nethyl, Fiskbúðinni Hófgerði, Fiskbúð Sjávarfangs Ísafirði, Fiskbúðinni Mos Mosfellsbæ, Fiskbúð Siglufjarðar og Hagkaupum Kringlunni. Fiskbúðin Hafberg, Fiskikóngurinn, Fiskbúðin Vegamót Nesvegi og Fiskbúðin Vík Reykjanesbæ neituðu þátttöku í könnuninni.

Hér er aðeins um beinan verðsamanburð að ræða en ekki er lagt mat á gæði eða þjónustu söluaðila. 

Óheimilt er að vitna í þessa könnun í auglýsingum og við sölu nema með heimild ASÍ

Close Menu

About Salient

The Castle
Unit 345
2500 Castle Dr
Manhattan, NY

T: +216 (0)40 3629 4753
E: hello@themenectar.com