Skip to main content

Allt að 9.000 kr. verðmunur er á þjónustu við dekkjaskipti fyrir jeppa af stærri gerðinni með álfelgu af stærð 265/60R18. Þetta kemur fram í verðkönnun sem verðlagseftirlit ASÍ gerði hjá 27 hjólbarðaverkstæðum víðsvegar um landið þann 27. október sl. N1 var oftast með hæsta verðið á þjónustunni en Titancar í Kópavogi var alltaf með lægsta verðið.

Allt að 9.000 kr. verðmunur er á þjónustu við dekkjaskipti fyrir jeppa af stærri gerðinni með álfelgu af stærð 265/60R18. Þetta kemur fram í verðkönnun sem verðlagseftirlit ASÍ gerði hjá 27 hjólbarðaverkstæðum víðsvegar um landið þann 27. október sl. N1 var oftast með hæsta verðið á þjónustunni en Titancar í Kópavogi var alltaf með lægsta verðið.

Mestur verðmunur í könnuninni var á þjónustu við dekkjaskipti á jeppa (t.d. Mitshubishi Pajero)  með 18´´ álfelgu (265/60R18) sem var ódýrust á 5.000 kr. hjá Titancar en dýrust á 14.010 kr. hjá N1,  verðmunurinn var 9.010 kr. eða 180%. Fyrir stálfelgu af sömu stærð var ódýrast að umfelga á 5.000 kr. hjá Titancar en dýrast á 12.685 kr. hjá Höldur dekkjaverkstæði Akureyri. Verðmunurinn var 7.685 kr. eða 154%.

Minnstur verðmunur í könnuninni var á dekkjaskiptum fyrir meðalbíl (t.d. Subaru Legacy) á 16´´ stálfelgum (205/55R16) en hún var ódýrust á 5.000 kr. hjá Titancar en dýrust á 7.420 kr. hjá N1, verðmunurinn var 2.420 kr. eða 48%. Fyrir bíl á álfelgu af sömu stærð var þjónustan ódýrust á 5.000 kr. hjá Titancar en dýrust á 8.614 kr. hjá N1. Verðmunurinn var 3.614 kr. eða 72%.

12 hjólbarðaverkstæði með sama verð og í fyrra
 Af þeim hjólbarðaverkstæðum sem borin eru saman á milli ára hafa 13 þeirra ekki hækkað hjá sér verðið á þjónustu við dekkjaskipti á meðalbíl með 15´´ álfelgu (195/65R15) frá því í október 2013. Mesta hækkunin var hjá Dekkjahúsinu um 10% og þar á eftir kom hækkun hjá Hjólbarðaverkstæði Sigurjóns um 8%, hjá N1 um 7%, hjá VIP dekk um 6%, hjá Gúmmívinnustofa SP dekk um 5% og hjá Hjólbarða og smurþjónustunni Klöpp og Bernard um 1%. Verð þjónustunnar hefur lækkað hjá Dekkverk um 500 kr. milli ára sem er lækkun upp á 9%.

Sjá nánar niðurstöður í töflu.

Hjólbarðaverkstæði Grafarvogs, Dekkjahöllin, Barðinn, Pústþjónusta BJB, Askja, Hjólbarðaþjónusta  Magnúsar, Toyota/Bílaverkstæði Austurlands, Bílaáttan, Kraftbílar, Bílverið, Sólning og Hjólbarðaverkstæði Kaldasels neituðu þátttöku í könnuninni

Kannað var verð á þjónustu við dekkjaskiptingu, umfelgun og jafnvægisstillingu á álfelgum og stálfelgum af stærðum 14,15, 16 og 18´´ á 29 hjólbarðaverkstæðum í Reykjavík, Kópavogi, Hafnarfirði, Garðabæ, Ísafirði, Akureyri, Egilsstöðum og Selfossi.
Verðin í könnuninni eru án afsláttar en verkstæðin bjóða upp á margskonar afsætti t.d. FÍB, eldri borgara og staðgreiðslu, viðskiptavinir eru því hvattir til að spyrja um afslátt.

Hér er aðeins um beinan verðsamanburð á þjónustu að ræða en ekki var lagt mat á gæði eða þjónustu söluaðila.

Óheimilt er að vitna í könnunina í auglýsingum og við sölu nema með heimild ASÍ.

 

Close Menu

About Salient

The Castle
Unit 345
2500 Castle Dr
Manhattan, NY

T: +216 (0)40 3629 4753
E: hello@themenectar.com