Skip to main content

Nú um áramótin tóku gildi ákvæði um nýtt réttindakerfi sem samþykkt voru á síðasta ársfundi Stapa lífeyrissjóðs. Meginn tilgangur þessarar breytingar er að tryggja betra jafnvægi milli eigna sjóðsins á hverjum tíma og verðmætis þeirra lífeyrisréttinda sem sjóðurinn veitir.

Nú um áramótin tóku gildi ákvæði um nýtt réttindakerfi sem samþykkt voru á síðasta ársfundi Stapa lífeyrissjóðsi. Meginn tilgangur þessarar breytingar er að tryggja betra jafnvægi milli eigna sjóðsins á hverjum tíma og verðmætis þeirra lífeyrisréttinda sem sjóðurinn veitir.

Gert er ráð fyrir að þessi kerfisbreyting hafi í för með sér óverulegar breytingar á áunnum réttindum sjóðfélaga, en nánar verður upplýst um þetta þegar uppgjör liggur fyrir og yfirfærslan hefur farið fram. Ekki verða breytingar á lífeyrisgreiðslum til lífeyrisþega vegna þessa.

Á næstu dögum verður bætt verulega við upplýsingum í "Spurt og svarað" á heimasíðu sjóðsins til
að gera betur grein fyrir því í hverju kerfisbreytingin er fólgin, um leið og reynt er að svara helstu spurningum, sem sjóðfélagar kunna að hafa vegna þessa.

Við hvetjum sjóðfélaga einnig til að hafa samband við sjóðinn og leita frekari upplýsinga um þessa breytingu, bæði  um það sem þeim finnst óljóst og það sem þeim finnst að frekari skýringar vanti um. Allar umsóknir um lífeyri, sem mótteknar voru fyrir sl. áramót verða afgreiddar miðað við eldra kerfi, en allar umsóknir sem mótteknar eru eftir áramótin verða afgreiddar miðað við nýtt kerfi.
 

 

Close Menu

About Salient

The Castle
Unit 345
2500 Castle Dr
Manhattan, NY

T: +216 (0)40 3629 4753
E: hello@themenectar.com