Skip to main content

Alþýðusamband Íslands hefur skorað á íslensk stjórnvöld að taka starfsemi Primera Air og Primera Air Nordic hér á landi til rækilegrar skoðunar og stöðva starfsemi þeirra. ASÍ hefur undir höndum gögn sem sýna að félögin brjóta lög og grundvallarréttindi á því starfsfólki Primera Air Nordic sem sinnir flugi fyrir Primera Air hér á landi. Þessu hefur Primera Air hafnað og hótað Alþýðusambandinu málsókn.

Um starfsemi Primera hér á landi
Primera Air er fyrirtæki með staðfestu á Íslandi, með íslenska kennitölu og VSK númer en er jafnframt hluti Primera Travel Group samstæðunnar. Félagið flýgur bæði leiguflug og áætlunarflug frá Keflavíkurflugvelli en hægt er að bóka á vef félagsins flug fram og til baka frá Íslandi og til ýmissa staða í Evrópu. Til þess að sinna þessu flugi eru leigðar flugvélar með áhöfn frá öðru fyrirtæki innan Primera Travel Group samstæðunnar, Primera Air Nordic, sem er nýtt flugfélag með flugrekstrarleyfi og aðsetur í Lettlandi.  Þessar flugvélar eru mannaðar með áhöfnum sem leigðar eru, alveg eða að hluta frá starfsmannaleigum utan Íslands, þ.m.t. frá Guernsey. Þetta viðskiptamódel eins og það er teiknað er löglegt en framkvæmd þess kann bæði að vera löglaus og siðlaus, fylgi þau fyrirtæki sem mynda módelið hvorki íslenskum lögum, EES-reglum né alþjóðlegum flugreglum.

Í fréttum fréttum RÚV þann 11. febrúar s.l. er haft eftir forsvarsmanni Primera Air, að „ … áhafnir flugfélaga sem sendar séu tímabundið til að sinna flugi, falli ekki sjálfkrafa undir lög eða reglur um kaup eða kjör þeirra landa þar sem tímabundin bækistöð eða starfsemi flugfélags er hverju sinni.“ Þessi fullyrðing er bæði rétt og röng en þó aðallega röng þegar litið til til íslenskra laga og þeirra reglna sem gilda um kjör og réttarstöðu áhafna sem hafa tímabundna bækistöð hér á landi.

Sjá nánar um málið á heimasíðu ASÍ.

Close Menu

About Salient

The Castle
Unit 345
2500 Castle Dr
Manhattan, NY

T: +216 (0)40 3629 4753
E: hello@themenectar.com