Skip to main content

4. þing Starfsgreinasambands Íslands verður sett í Hofi á Akureyri í dag undir yfirskriftinni Samstaða og samvinna.
Þingið mun fjalla um kjaramál í aðdraganda kjarasamninga, atvinnumál almennt, húsnæðismál og fleira.

4. þing Starfsgreinasambands Íslands verður sett í Hofi á Akureyri þann 16. október 2013 undir yfirskriftinni Samstaða og samvinna. Þingið mun fjalla um kjaramál í aðdraganda kjarasamninga, atvinnumál almennt, húsnæðismál og fleira.


Þegar formaður Starfsgreinasambandsins, Björn Snæbjörnsson, hefur sett þingið munu þau Eygló Harðardóttir félags- og húsnæðismálaráðherra og Gylfi Arnbjörnsson forseti ASÍ flytja ávörp. 
 
Starfsgreinasamband Íslands (SGS) er landssamband almenns og sérhæfðs verkafólks. SGS er stærsta landssamband innan ASÍ, en 19 verkalýðsfélög eiga aðild að sambandinu með um 50 þúsund félagsmenn.
Af þessum 19 félögum fer Starfsgreinasambandið með umboð fyrir 16 félög í komandi kjaraviðræðum en samkvæmt hefð semur Flóabandalagið sér, þ.e. Efling-stéttarfélag, Vlsfél. Keflavíkur og nágrennis (VSFK) og Vlf. Hlíf í Hafnarfirði.
 
Aðildarfélög SGS eru: 
Efling-stéttarfélag, Vlf. Akraness, Stéttarfélag Vesturlands, Vlf. Snæfellinga, Vlf. Vestfirðinga, Vlsfél. Bolungarvíkur, Stéttarfélagið Samstaða, Aldan stéttarfélag, Eining-Iðja, Framsýn stéttarfélag, Vlf. Þórshafnar, Afl-Starfsgreinafélag, Vlf. Suðurlands, Báran stéttarfélag, Drífandi stéttarfélag, Vfl. Grindavíkur, Vlsfél. Keflavíkur og nágrennis (VSFK), Vlsfél. Sandgerðis og Vlf. Hlíf

Close Menu

About Salient

The Castle
Unit 345
2500 Castle Dr
Manhattan, NY

T: +216 (0)40 3629 4753
E: hello@themenectar.com