Skip to main content

Nú líður að því að nýjar reglur Starfsmenntasjóðs verslunar- og skrifstofufólks taki gildi.
2 ára aðlögunartími hefst nú um áramótin og eru félagsmenn hvattir til að kynna sér nýju reglurnar.

Nú líður að því að nýjar reglur Starfsmenntasjóðs verslunar- og skrifstofufólks taki gildi. 
2 ára aðlögunartími hefst nú um áramótin og eru félagsmenn
hvattir til að kynna sér nýju reglurnar.

Hér er nokkrum af helstu spurningunum svarið en nýju reglurnar í heild sinni má lesa á heimasíðu sjóðsins.

 1. Hvenær taka nýjar reglur gildi?
Hægt er að sækja um samkvæmt nýju reglunum strax um áramótin 2013 / 2014.

2. Hver er helsta breytingin í nýjum reglum?
Félagsmaður í fullu starfi hefur rétt á að sækja um allt að 90.000 kr. í styrk á ári samkvæmt nýju reglunum. Í núverandi reglum safna félagsmenn stigum eftir því hvað þeir fá í tekjur.
Dæmi: ef starfsmaður hefur 225.000 kr. í tekjur á mánuði fær viðkomandi 1,25 stig á mánuði (225.000/180.000 = 1,25).
Það samsvarar 1.250 króna styrk á mánuði, eða kr. 15.000 á ári.

3. Ef ég fer á starfstengt námskeið sem kostar 130.000 kr., hve mikið get ég fengið endurgreitt samkvæmt nýju reglunum?
Samkvæmt nýju reglunum er hægt að fá 75% af greiddu námskeiðsgjaldi í starfstengdu námi endurgreidd.
Það gera 97.500 kr. miðað við þennan reikning og þá fengir þú 90.000 krónur.

4. Ég er í hlutastarfi, get ég sótt um styrk samkvæmt nýju reglunum?
Fullur styrkur miðast við lágmarkslaun, sem eru 196.450 kr. Félagsmenn sem eru í hlutastarfi með laun undir þeirri krónutölu geta sótt um og fengið hlutfall af hámarksstyrk sem er 90.000 kr.

5. Hvers vegna var ákveðið að breyta reglunum?
Nýjar reglur eiga að gera félagsmönnum með lægri laun kleift að vinna sér inn réttindi hraðar.
Einnig er það von sjóðsins að nýju reglurnar hvetji félagsmenn til frekari þátttöku í símenntun.

6. Ég á mörg fræðslustig uppsöfnuð. Hvað verður um þau?
Tveggja ára aðlögunartími hefst um áramótin 2013/2014. Þú hefur því tvö ár frá áramótum til þess að nota stigin þín. Ekki er hægt að sækja um styrk samkvæmt eldri og nýjum reglum á sama ári.

7. Það er alltaf talað um að starfstengt nám sé styrkhæft, hvað með tómstundanám eða líkamsrækt?
Tómstundanám er nám sem tengist starfi ekki með beinum hætti. Hægt er að sækja um styrk fyrir tómstundanámi og er greiddur helmingur af kostnaði þess. Þó ekki hærri upphæð en
20.000 kr. á ári, sem dregst frá hámarksstyrk 90.000 kr. Líkamsrækt er ekki styrkt af starfsmenntasjóði en hægt er að nýta sjúkrasjóðinn vegna hennar.

8. Er hægt að safna styrknum milli ára?
Já, ef ekkert er sótt í sjóðinn í 3 ár getur félagsmaður fengið styrk að upphæð 270.000 kr. fyrir eitt samfellt nám. Ekki er hægt að safna umfram þá upphæð. Þessi regla tekur gildi árið 2017.

 

 

Close Menu

About Salient

The Castle
Unit 345
2500 Castle Dr
Manhattan, NY

T: +216 (0)40 3629 4753
E: hello@themenectar.com