Fundaherferðin Réttlátur vinnumarkaður – allra hagur! hefst á Norðurlandi í næstu viku. Um er að ræða málþing sem ASÍ stendur fyrir í samvinnu við stéttarfélög á svæðunum. Þar verður rætt um stöðuna á vinnumarkaði með tilliti til undirboða og brotastarfsemi á hverju svæði fyrir sig. Félagsmenn eru hvattir til að mæta og taka þátt í fjörugri umræðu um betra samfélag.
Fundaherferðin Réttlátur vinnumarkaður – allra hagur! hefst á Norðurlandi í næstu viku. Um er að ræða málþing sem Alþýðusamband Íslands stendur fyrir í samvinnu við stéttarfélög á svæðunum. Þar verður rætt um stöðuna á vinnumarkaði með tilliti til undirboða og brotastarfsemi á hverju svæði fyrir sig. Þá verður spurningin "hvernig samfélag viljum við vera?" rædd.
Fyrsti fundurinn verður 21. mars í Varmahlíð í Skagafirði, daginn eftir verður fundur í Hofi á Akureyri og sá þriðji verður á Húsavík fimmtudaginn 22. mars.
Félagsmenn eru hvattir til að mæta og taka þátt í fjörugri umræðu um betra samfélag.