Verslunarmannafélagið og Aldan efna til sameiginlegs fundar um nýgerða kjarasamninga nk. miðvikudag. Á fundinum fjallar Ólafur Darri Andrason um samninginn og svarar spurningum félagsmanna.
Nýr kjarasamningur !
Hvert er innihaldið ?
Um hvað var samið ?
Þessum spurningum mun Ólafur Darri Andrason hagfræðingur ASÍ svara á sameiginlegum fundi Öldunnar stéttarfélags og Verslunarmannafélags Skagafjarðar.
Fundurinn verður haldinn kl. 18:00 á Mælifelli, miðvikudaginn 11. maí.
Fundurinn verður opinn öllum félagsmönnum þessara félaga og eru þeir eindregið hvattir til að mæta á fundinn og fá kynningu á efni nýgerðs kjarasamnings sem fer í atkvæðagreiðslu á næstu dögum.