Skip to main content

Vörukarfa ASÍ hefur hækkað í verði hjá níu verslunum og verslunarkeðjum af 14 sem skoðaðar voru frá því í apríl 2014 (viku 14) þar til nú um miðjan september (vika 37). Mesta hækkunin á þessu tímabili er 2,9% hjá Samkaupum-Strax og 1,6% hjá Nóatúni. Vörukarfan lækkaði hins vegar mest hjá Nettó eða um 2,1%.

Vörukarfa ASÍ hefur hækkað í verði hjá níu verslunum og verslunarkeðjum af 14 sem skoðaðar voru frá því í apríl 2014 (viku 14) þar til nú um miðjan september (vika 37). Mesta hækkunin á þessu tímabili er 2,9% hjá Samkaupum-Strax og 1,6% hjá Nóatúni. Vörukarfan lækkaði hins vegar mest hjá Nettó eða um 2,1%. Það má sjá verðbreytingar í öllum vöruflokkum, bæði hækkanir og lækkanir á tímabilinu, en áberandi eru miklar sveiflur á verði grænmetis og ávaxta, kjötvöru og hreinlætis- og snyrtivöru.

Verð á vörukörfu ASÍ hækkaði mest um 2,9% hjá Samkaupum-Strax, 1,6% hjá Nóatúni, 1,1% hjá Víði, um 0,8% hjá Bónus, Krónunni og Kaskó, 0,5% hjá Samkaupum-Úrval, 0,4% hjá Kjarval og 0,3% hjá Kaupfélagi Skagfirðinga. Vörukarfan hefur lækkað í verði hjá fimm verslunum en mest lækkaði karfan um 2,1% hjá Nettó, 1% hjá Kaupfélagi Vestur-Húnvetninga, 0,8% hjá Hagkaupum, 0,3% hjá Tíu-ellefu en hjá Iceland hefur verð vörukörfunnar nánast staðið í stað á milli þessara tveggja mælinga.

 

Breytingar í öllum vöruflokkum
Vöruflokkurinn hreinlætis- og snyrtivörur hefur hækkað hjá helmingi verslana, en mesta hækkunin er hjá Samkaupum-Strax 10,1% og hjá Kaupfélagi Skagfirðinga 3%, mesta lækkunin er hjá Kjarval 7,8%, Nettó 7,3% og Nóatúni 6%.
Verð á grænmeti- og ávöxtum hefur sveiflast nokkuð, en mesta hækkunin er hjá Samkaupum-Strax 11,2% en mesta lækkunin er hjá Iceland 8,2%. Miklar verðbreytingar eru einnig í vöruflokknum kjötvörur, sem vegur nokkuð þungt í vörukörfunni. Níu verslanir af 14 hafa hækkað verðið Nóatún mest eða um 5,9%, Samkaup-Strax 4%, Krónan 3,9% en verslanirnar Iceland, Hagkaup, Samkaup-Úrval, Tíu-ellefu, Kaskó og Kaupfélag Vestur-Húnvetninga hafa hækkað verðið um 0,2-0,7%. Kjötvörur hafa hins vegar lækkað í verði hjá Kjarval um 6,6%, Nettó 5,7%, Víði 5,6%, Bónus 2,3% og Kaupfélagi Skagfirðinga um 0,2%.
 

Sjá nánar á töflum á heimasíðu ASÍ.

Verðlagseftirlitið mælir breytingar á verði vörukörfu sem getur endurspeglað almenn innkaup meðalheimilis. Vörukarfa ASÍ inniheldur allar almennar matar- og drykkjarvörur, t.d. brauðmeti, morgunkorn, pasta, kjöt, fisk, grænmeti, ávexti, pakkavörur, kaffi, gos, safa, auk hreinlætis- og snyrtivara. Við samsetningu vörukörfunnar voru hafðar til hliðsjónar vogir Hagstofunnar sem notaðar eru til útreiknings á vísitölu neysluverðs. Vogirnar segja til um hversu stór hluti tilteknir vöruflokkar eru af neyslukörfu meðal heimilis.

Verðbreytingar voru skoðaðar í eftirfarandi verslunum:
Í lágvöruverðsverslununum Bónus, Krónunni, Nettó og Iceland; í almennu matvöruverslununum Hagkaupum, Nóatúni og Samkaupum-Úrvali, Tíu-ellefu, Samkaupum-Strax og Víði; í verslunum staðsettum á landsbyggðinni Kjarval, Kaskó, Kaupfélagi Skagfirðinga, og Kaupfélagi Vestur-Húnvetninga.
Þess ber að geta að hér eru einungis birtar upplýsingar um verðbreytingar  milli verðmælinga. Ekki er því um beinan verðsamanburð að ræða  þ.e.a.s. hvar ódýrustu vörukörfuna var að finna. Einnig er rétt að athuga að skoðuð eru þau verð sem eru í gildi í verslununum á hverjum tíma og geta tilboð á einstaka vöruliðum því haft áhrif á niðurstöðurnar.

Óheimilt er að vitna í niðurstöðurnar í auglýsingum og við sölu nema með heimild ASÍ.
 

 

 

 

Close Menu

About Salient

The Castle
Unit 345
2500 Castle Dr
Manhattan, NY

T: +216 (0)40 3629 4753
E: hello@themenectar.com