Skip to main content

Verkfallsaðgerðir rúmlega 10 þúsund félagsmanna Starfsgreinasambands Íslands (SGS) hefjast í næstu viku. Félagsmenn SGS samþykktu aðgerðirnar með yfirgnæfandi meirihluta, eða 94,6%, í atkvæðagreiðslu sem staðið hafði í eina viku og lauk á miðnætti í gær.

Verkfallsaðgerðir rúmlega 10 þúsund félagsmanna Starfsgreinasambands Íslands (SGS) hefjast í næstu viku.
Félagsmenn SGS samþykktu aðgerðirnar með yfirgnæfandi meirihluta, eða 94,6%, í atkvæðagreiðslu sem staðið hafði í eina viku og lauk á miðnætti í gær.

Kjörsókn var 50,4% en þátttaka í kosningunni jókst eftir því sem leið á vikuna samfara mikilli umfjöllun og umræðu sem varð um kjaramál síðustu daga í þjóðfélaginu. Kjörsóknin var umtalsvert meiri en væntingar verkalýðsfélaganna höfðu staðið til.

Verkfall félagsmanna SGS hefst því fimmtudaginn 30. apríl og stendur fyrst um sinn yfir í hálfan sólarhring, frá hádegi til miðnættis. Eftir það taka við regluleg sólarhringsverkföll þar til ótímabundið verkfall hefst 26. maí. Ljóst er að verkföllin munu hafa mikil áhrif á fjölda vinnustaða um land allt.

Kosið var í 16 aðildarfélögum Starfsgreinasambandsins um tvo aðalkjarasamninga, niðurstöður skipt eftir aðildarfélögum og samningum má sjá hér, en eftir samningum varð niðurstaðan þessi:

Almennur kjarasamningur SGS og Samtaka atvinnulífsins

Kjörsókn: 55.34%
 Já: 95,44%
 Nei: 3,62%
 Autt: 0,94%

Kjarasamningur SGS og Samtaka atvinnulífsins vegna veitinga-, gisti-, þjónustu- og greiðasölustaða, afþreyingarfyrirtækja og hliðstæðrar starfsemi.

Kjörsókn: 29,74%
 Já: 88,31%
 Nei: 8,9%
 Autt: 2,79%

Niðurstöður atkvæðagreiðslunnar í heild sinni (PDF).

 

Björn Snæbjörnsson, formaður Starfsgreinasambands Íslands:

„Við fögnum þessari kjörsókn. Verkföll eru alltaf síðasta úrræðið og við vonum að það náist að semja fyrir 30. apríl. Þó getum við ekki verið of vongóð miðað við það sem komið hefur frá fulltrúum Samtaka atvinnulífsins. Þá skiptir máli að niðurstaðan í kosningunni var skýr, félagsmenn eru tilbúnir í verkfall. Kjörsókn upp á 50,4%  þar sem 95% lýsa einni afstöðu, er mjög hátt hlutfall. Sérstaklega þegar litið er til þess um hversu fjölbreyttan hóp fólks er að ræða, t.a.m. farandverkafólk, skólafólk og fólk í hlutastörfum.  Kjörsóknin var einnig meiri á þeim stöðum þar sem fiskvinnsla er undirstöðugrein og kemur það okkur síst á óvart, enda er óréttlætið í því hvernig gæðunum er skipt alveg hrópandi í sjávarútveginum.“

           ————————————————————————————————————————————–

Tímasetningar verkfallsaðgerðanna:

30. apríl 2015: Allsherjar vinnustöðvun frá klukkan 12:00 á hádegi til miðnættis sama dag.
6. maí 2015: Allsherjar vinnustöðvun frá miðnætti til miðnættis (allur 6. maí).
7. maí 2015: Allsherjar vinnustöðvun frá miðnætti til miðnættis (allur 7. maí).
19. maí 2015: Allsherjar vinnustöðvun frá miðnætti til miðnættis (allur 19. maí).
20. maí 2015: Allsherjar vinnustöðvun frá miðnætti til miðnættis (allur 20. maí).
26. maí 2015: Ótímabundin vinnustöðvun hefst á miðnætti aðfaranótt 26. maí 2015.

42% atkvæðisbærra félaga í SGS starfa á matvælasviði (fiskvinnslu, afurðastöðvum, kjötvinnslum og í sláturhúsum) en 32% eru í þjónustugreinum (ferðaþjónustu, ræstingum o.fl.). Aðrir hópar telja byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð, iðnað og farartækja- og flutningsgreinar.

Close Menu

About Salient

The Castle
Unit 345
2500 Castle Dr
Manhattan, NY

T: +216 (0)40 3629 4753
E: hello@themenectar.com