Skip to main content
Stéttarfélag.is

Hvatningarbréf til atvinnurekenda !

By October 23, 2025No Comments

STUNDIN ER RUNNIN UPP !

Föstudaginn 24. október 2025, eru konur og kynsegin fólk hvatt til að leggja niður launaða og ólaunaða vinnu allan daginn eins og konur gerðu þegar fyrst var boðað til Kvennafrís fyrir árið 1975. Það var sögulegur viðburður á alheimsvísu enda lögðu 90% kvenna á Íslandi niður vinnu þann dag til að sýna fram á mikilvægi vinnuframlags kvenna fyrir samfélagið.

Það sást með skýrum hætti m.a. þar sem að leikskólar og grunnskólar lokuðu, kennsla féll niður í framhaldsskólum og Háskóla Íslands, þjónusta var skert eða loka þurfti í verslunum, bönkum og fjölmörgum fyrirtækjum og stofnunum. Fiskvinnsla og flug féll niður og konur lögðu niður störf á skipum sem voru úti við veiðar og svo mætti lengi telja.

Kvennaverkfall 2023 gerði kröfur um breytingar sem framkvæmdastjórn Kvennaárs setti fram í formi aðgerða sem grípa þarf til, afhenti stjórnvöldum og gaf þeim eitt ár, til 24. október 2025 til að hrinda í framkvæmd. Í þeim felst krafa um lagabreytingar, aðgerðir gegn ofbeldi, launamuni kynjanna, til að bæta stöðu mæðra og að útrýma mismunun á vinnumarkaði. Nú er komið að skuldadögum en mælaborð framkvæmdastjórnar sýnir að að lítið hefur gerst í þeim málum.

Baráttu- og samstöðufundir verða haldnir um allt land þennan dag. Í Reykjavík verður söguganga sem hefst kl. 13:30 og fundur á Arnarhóli og við hvetjum konur og kvár í nærsveitum Reykjavíkur, svo sem Borgarfirði, Akranesi, Selfossi og af Suðurnesjum til að sýna samstöðu í verki, fylkja liði og mæta. Þá verður skipulögð dagskrá allan daginn bæði í raunheimum og á netinu. Nánari upplýsingar um samstöðufundi og dagskrá er að finna á kvennaar.is en síðan er uppfærð reglulega.

Sýndu stuðning þinn í verki
Við hvetjum þig og þitt/þína fyrirtæki/stofnun til að sýna konum og kvárum stuðning í baráttunni með því að hvetja þau til þátttöku í Kvennaverkfalli án þess að það hafi áhrif á laun þeirra eða kjör.

Starfsemi vinnustaða er fjölbreytt og sumstaðar þess eðlis að ekki er hægt að leggja alfarið niður störf þar sem það myndi stofna nauðsynlegu öryggi eða heilsu fólks í hættu. Dæmi þar um eru tiltekin störf innan heilbrigðisstofnana, stofnana í öldrunarþjónustu eða í þjónustu við fatlað fólk. Eigi það við um þína stofnun/fyrirtæki hvetjum við til þess að leitað sé allra leiða til að gera konum og kvárum kleift að leggja niður störf þann 24. október n.k. til dæmis með breytingu á mönnunarskipulagi þann daginn og fá karlkyns starfsfólk til að taka að sér þjónustuna eða verkefnin. Við hvetjum jafnframt ómissandi starfsfólk til að þátttöku með t.d. sýnileika á samfélagsmiðlum undir myllumerkingu #kvennaverkfall og #ómissandi.

Við vekjum athygli á því að leikskólar, skólar og frístundaheimili kunna að verða óstarfhæf þennan dag og því munu margir feður, afar, frændur og bræður þurfa að taka börn með í vinnuna eða fá frí.

Með fyrirfram þökk fyrir hvatninguna og stuðninginn,
framkvæmdastjórn Kvennaverkfallsins 2025

Close Menu

About Salient

The Castle
Unit 345
2500 Castle Dr
Manhattan, NY

T: +216 (0)40 3629 4753
E: hello@themenectar.com