Alþýðusamband Íslands heldur opinn félagsfund með stjórnum og trúnaðarráðum allra aðildarfélaga þess á Norðurlandi vestra. Fundurinn verður haldinn fimmtudaginn 7. mars á Mælifelli og hefst hann kl. 18:30.
Alþýðusamband Íslands heldur fund með stjórnum og trúnaðarráðum allra aðildarfélaga þess á Norðurlandi vestra. Fundurinn verður haldinn fimmtudaginn 7. mars á Mælifelli og hefst hann kl. 18:30.
Um opinn fund er að ræða og eru fundarmenn því hvattir til að taka með sér gesti úr röðum félagsmanna. Boðið verður upp á kjötsúpu á fundinum.
Yfirskrift fundarins er kaupmáttur – atvinna – velferð.
Fundarefnið er þríþætt :
1. Áherslur ASÍ varðandi stöðu og þróun kjaramála og kaupmáttar launafólks með sérstakri áherslu á baráttuna við verðbólguna og stefnu og aðgerðir ASÍ í þeim efnum.
2. Áherslur ASÍ á auknar fjárfestingar og eflingu atvinnulífs eins og þær voru mótaðar á 40. þingi ASÍ í október sl.
3. Velferðarmálin með sérstakri áherslu á tillögur ASÍ varðandi nýtt húsnæðislánakerfi, auk þess sem fjallað verður um vinnu ASÍ að mótun félagslegs húsnæðiskerfis.