Skip to main content
VMF

Kaupmáttur – atvinna – velferð, opinn félagsfundur með ASÍ

By March 4, 2013No Comments

Alþýðusamband Íslands heldur opinn félagsfund með stjórnum og trúnaðarráðum allra aðildarfélaga þess á Norðurlandi vestra. Fundurinn verður haldinn fimmtudaginn 7. mars á Mælifelli og hefst hann kl. 18:30.

Alþýðusamband Íslands heldur fund með stjórnum og trúnaðarráðum allra aðildarfélaga þess á Norðurlandi vestra. Fundurinn verður haldinn fimmtudaginn 7. mars á Mælifelli og hefst hann kl. 18:30. 

Um opinn fund er að ræða og eru fundarmenn því hvattir til að taka með sér gesti úr röðum félagsmanna. Boðið verður upp á kjötsúpu á fundinum.

Yfirskrift fundarins er kaupmáttur – atvinna – velferð.

Fundarefnið er þríþætt :

1. Áherslur ASÍ varðandi stöðu og þróun kjaramála og kaupmáttar launafólks   með sérstakri áherslu á baráttuna við verðbólguna og stefnu og aðgerðir ASÍ í þeim efnum.
2. Áherslur ASÍ á auknar fjárfestingar og eflingu atvinnulífs eins og þær voru mótaðar á 40. þingi ASÍ í október sl.
3. Velferðarmálin með sérstakri áherslu á tillögur ASÍ varðandi nýtt húsnæðislánakerfi, auk þess sem fjallað verður um vinnu ASÍ að mótun félagslegs húsnæðiskerfis.

Close Menu

About Salient

The Castle
Unit 345
2500 Castle Dr
Manhattan, NY

T: +216 (0)40 3629 4753
E: hello@themenectar.com