Skip to main content
VMF

Verðkönnun í apótekum

By May 23, 2013No Comments

Verðlagseftirlit ASÍ kannaði í síðustu viku verð á ýmsum vörum sem seldar eru í apótekum, s.s. bossakremi, sólarvörn, fæðubótarefni, smokkum og lúsasjampói.

Á heimasíðu ASÍ má finna frétt um könnun sem verðlagseftirlit ASÍ gerði í síðustu viku.
Kannað var verð á ýmsum vörum sem seldar eru í apótekum, 
m.a. vörur eins og bossakrem, sólarvörn, fæðubótarefni, smokkar og lúsasjampó.
Farið var í 18 apótek en Árbæjarapótek, Lyfjaborg og Apótek Ólafsvíkur neituðu þátttöku í könnuninni.

Lægsta verðið var oftast að finna hjá Apóteki Hafnarfjarðar og Lyfjaveri en hæsta verðið var oftast að finna hjá Skipholts Apóteki.

Oftast var 25-50% verðmunur á hæsta og lægsta verði á milli apótekanna en ekkert apótekanna  átti allar vörurnar sem til skoðunar voru.


Fréttina má lesa í heild sinni á heimasíðu ASÍ.

Close Menu

About Salient

The Castle
Unit 345
2500 Castle Dr
Manhattan, NY

T: +216 (0)40 3629 4753
E: hello@themenectar.com