Hlutverki og starfsemi VIRK Starfsendurhæfingarsjóðs eru gerð skil í stuttu máli í nýju kynningarmyndbandi sem bæði er á íslensku og ensku og birt var nýverið á vef VIRK. VIRK – Starfsendurhæfingarsjóður er sjálfseignarstofnun með aðild allra helstu samtaka stéttarfélaga og atvinnurekenda á vinnumarkaði.
Hlutverki og starfsemi VIRK Starfsendurhæfingarsjóðs eru gerð skil í stuttu máli í nýju kynningarmyndbandi sem bæði er á íslensku og ensku og birt var nýverið á vef VIRK.
VIRK – Starfsendurhæfingarsjóður er sjálfseignarstofnun með aðild allra helstu samtaka stéttarfélaga og atvinnurekenda á vinnumarkaði. Hlutverk VIRK er að móta, samþætta og hafa eftirlit með þjónustu á sviði starfsendurhæfingar sem miðar markvisst að atvinnuþátttöku einstaklinga í kjölfar veikinda eða slysa.
VIRK hefur tvo ráðgjafa starfandi á Norðurlandi vestra, þær Hrafnhildi Guðjónsdóttur og Hönnu Dóru Björnsdóttur. Þær eru starfsmenn Öldunnar en starfa fyrir öll stéttarfélög á svæðinu.
Tilgangur með þjónustu á vegum VIRK er að aðstoða fólk við að komast til vinnu. Um er að ræða markvissa ráðgjöf og þjónustu á sviði starfsendurhæfingar sem krefst fullrar þátttöku viðkomandi einstaklings. Þjónusta VIRK er einstaklingum að kostnaðarlausu.
VIRK starfar í nánu samstarfi við stéttarfélög, atvinnurekendur, ýmsa þjónustuaðila í starfsendurhæfingu og stofnanir velferðarkerfisins. Á vegum VIRK starfa sérhæfðir ráðgjafar í starfsendurhæfingu sem eru staðsettir hjá stéttarfélögum víða um land, þverfagleg teymi sérfræðinga sem vinna að gerð árangursríkra starfsendurhæfingaráætlana auk þess sem fjölbreyttur hópur fagaðila veitir sérhæfða þjónustu og ráðgjöf á sviði starfsendurhæfingar.