Skip to main content
AldanVMF

Hvað er VIRK?

By October 20, 2014No Comments

Hlutverki og starfsemi VIRK Starfsendurhæfingarsjóðs eru gerð skil í stuttu máli í nýju kynningarmyndbandi sem bæði er á íslensku og ensku og birt var nýverið á vef VIRK. VIRK – Starfsendurhæfingarsjóður er sjálfseignarstofnun með aðild allra helstu samtaka stéttarfélaga og atvinnurekenda á vinnumarkaði.

Hlutverki og starfsemi VIRK Starfsendurhæfingarsjóðs eru gerð skil í stuttu máli í nýju kynningarmyndbandi   sem bæði er á íslensku og ensku og birt var nýverið á vef VIRK.

VIRK – Starfsendurhæfingarsjóður er sjálfseignarstofnun með aðild allra helstu samtaka stéttarfélaga og atvinnurekenda á vinnumarkaði. Hlutverk VIRK er að móta, samþætta og hafa eftirlit með þjónustu á sviði starfsendurhæfingar sem miðar markvisst að atvinnuþátttöku einstaklinga í kjölfar veikinda eða slysa.

VIRK hefur tvo ráðgjafa starfandi á Norðurlandi vestra,  þær Hrafnhildi Guðjónsdóttur og Hönnu Dóru Björnsdóttur. Þær eru starfsmenn Öldunnar en starfa fyrir öll stéttarfélög á svæðinu.

Tilgangur með þjónustu á vegum VIRK er að aðstoða fólk við að komast til vinnu. Um er að ræða markvissa ráðgjöf og þjónustu á sviði starfsendurhæfingar sem krefst fullrar þátttöku viðkomandi einstaklings. Þjónusta VIRK er einstaklingum að kostnaðarlausu.

VIRK starfar í nánu samstarfi við stéttarfélög, atvinnurekendur, ýmsa þjónustuaðila í starfsendurhæfingu og stofnanir velferðarkerfisins. Á vegum VIRK starfa sérhæfðir ráðgjafar í starfsendurhæfingu sem eru staðsettir hjá stéttarfélögum víða um land, þverfagleg teymi sérfræðinga sem vinna að gerð árangursríkra starfsendurhæfingaráætlana auk þess sem fjölbreyttur hópur fagaðila veitir sérhæfða þjónustu og ráðgjöf á sviði starfsendurhæfingar.

Kynningarmyndbandið má sjá hér.

Close Menu

About Salient

The Castle
Unit 345
2500 Castle Dr
Manhattan, NY

T: +216 (0)40 3629 4753
E: hello@themenectar.com