Um áramótin tóku gildi breytingar á lögum um virðisaukaskatt og vörugjöld sem hafa áhrif á verðlag á allflestum vöru- og þjónustuliðum. Breytingar á virðisaukaskatti ættu að hafa áhrif á verðlag strax í upphafi nýs árs en ætla má að breytingar á vörugjöldum kunni skila sér á næstu vikum. Alþýðusambandið hvetur neytendur til að fylgjast vel með áætluðum áhrifum breytinganna og hvernig þær skila sér út í verðlag.
Um áramót tóku gildi breytingar á lögum um virðisaukaskatt og vörugjöld sem hafa áhrif á verðlag á allflestum vöru- og þjónustuliðum. Breytingar á virðisaukaskatti ættu að hafa áhrif á verðlag strax í upphafi nýs árs en ætla má að breytingar á vörugjöldum kunni skila sér á næstu vikum.
Alþýðusambandið hvetur neytendur til að fylgjast vel með áætluðum áhrifum breytinganna og hvernig þær skila sér út í verðlag en ASÍ mun á næstu dögum birta ítarlegri umfjöllun og dæmi um áhrif breytinganna.
Helstu breytingar eru eftirfarandi:
Almenna þrep virðisaukaskatts lækkar úr 25,5% í 24% – lækkar verð um 1,2%
Dæmi um vörur og þjónustu í almenna þrep virðisaukaskatts:
- Föt og skór
- Lyf
- Áfengi og tóbak
- Raforka til almennra nota
- Þjónusta iðnaðarmanna
- Húsgögn og húsbúnaður
- Búsáhöld
- Verkfæri
- Tölvur og prentara
- Símtæki
- Bílar
- Bílaviðgerðir
- Póst og símaþjónusta
- Tryggingar
- Hársnyrting
- Snyrtivörur
- Skartgripir og úr
- Hreinlætisvörur
- Flugfargjöld
Neðra þrep virðisaukaskatts hækkar úr 7% í 11% – Vöruverð hækkar um 3,7%
Helstu vörur og þjónustuliðir í neðra þrepi virðisaukaskatts:
- Mat- og óáfengar drykkjarvörur
- Bækur
- Dagblöð og tímarit
- Geisladiskar
- Heitt vatn
- Raforka til húshitunar
- Bleiur og smokkar
- Gistiþjónusta
- Veitingaþjónusta
- Afnotagjöld útvarps- og sjónvarpsstöðva
- Aðgangur að vegamannvirkjum – Hvalfjarðargöng
Almenn vörugjöld eru felld brott
Almenn vörugjöld eru afnumin en þau voru lögð á sykur og sætar mat- og drykkjarvörur, stærri raftæki, byggingarvörur og bílavarahluti.
Helstu breytingar á vörugjöldum eru eftirfarandi:
Sykur og sætar mat- og drykkjarvörur (sykurskattur)
Áhrif breytinganna á verð einstakra vara er misjafnt og fer eftir því hversu mikinn sykur/sætuefni þau innihalda en hvert kíló sykurs bar fyrir 1. janúar 210 króna vörugjald.
Virðisaukaskattur á þessum vörum hækkar hins vegar úr 7% í 11%.
Dæmi um sætar mat og drykkjarvörur sem báru vörugjald (sykurskatt)
- Sykur, molasykur, púðursykur o.þ.h. – 210 kr/kg
- Gosdrykkir – 21 kr/lítra
- Ís – 32 kr/lítra
- Sultur, grautar, ávaxtamauk – 210 kr/kg af viðbættum sykri
- Kex og sætabrauð – 210 kr/kg af viðbættum sykri
- Súkkulaði og sælgæti – 210 kr/kg af viðbættum sykri
- Sætar mjólkurvöru – 210 kr/kg af viðbættum sykri
- Sætt morgunkorn – 210 kr/kg af viðbættum sykri
Stærri raftæki sem bera 25% vörugjöld – lækka í verði um 21%
Virðisaukaskattur á þessum vörum lækkar jafnframt úr 25,5% í 24%
Dæmi um vörur sem báru 25% vörugjald
- Sjónvörp
- Útvörp, hljómflutningstæki og hátalarar
- Myndbandstæki
- Heimabíókerfi
Stærri raftæki sem bera 20% vörugjöld – lækka í verði um 18%
Virðisaukaskattur á þessum vörum lækkar jafnframt úr 25,5% í 24%
Dæmi um vörur sem báru 20% vörugjald
- Þvottavélar
- Þurrkarar
- Eldavélar, helluborð og ofnar
- Kæliskápar
- Frystiskápar- og kistur
- Uppþvottavélar
- Örbylgjuofnar
Byggingavörur og bílavarahlutir sem báru 15% vörugjöld – lækka í verði um 14%
Virðisaukaskattur á þessum vörum lækkar jafnframt úr 25,5% í 24%
Dæmi um vörur sem báru 15 % vörugjald
- Vaskar, baðker, sturtuklefar, salernisskálar
- Blöndunartæki
- Gólfefni
- Flísar
- Veggfóður
- Gipsplötur, þiljur
- Lampar og ljósabúnaður
- Rafgeymar
- Stuðarar
- Gírkassar
- Vatnskassar
- Baksýnisspeglar