Skip to main content

Um áramótin tóku gildi breytingar á lögum um virðisaukaskatt og vörugjöld sem hafa áhrif á verðlag á allflestum vöru- og þjónustuliðum. Breytingar á virðisaukaskatti ættu að hafa áhrif á verðlag strax í upphafi nýs árs en ætla má að breytingar á vörugjöldum kunni skila sér á næstu vikum. Alþýðusambandið hvetur neytendur til að fylgjast vel með áætluðum áhrifum breytinganna og hvernig þær skila sér út í verðlag.

Um áramót tóku gildi breytingar á lögum um virðisaukaskatt og vörugjöld sem hafa áhrif á verðlag á allflestum vöru- og þjónustuliðum. Breytingar á virðisaukaskatti ættu að hafa áhrif á verðlag strax í upphafi nýs árs en ætla má að breytingar á vörugjöldum kunni skila sér á næstu vikum.
Alþýðusambandið hvetur neytendur til að fylgjast vel með áætluðum áhrifum breytinganna og hvernig þær skila sér út í verðlag en ASÍ mun á næstu dögum birta ítarlegri umfjöllun og dæmi um áhrif breytinganna.

Helstu breytingar eru eftirfarandi:

Almenna þrep virðisaukaskatts lækkar úr 25,5% í 24%  – lækkar verð um 1,2%

Dæmi um vörur og þjónustu í almenna þrep virðisaukaskatts:

  • Föt og skór
  • Lyf
  • Áfengi og tóbak
  • Raforka til almennra nota
  • Þjónusta iðnaðarmanna
  • Húsgögn og húsbúnaður
  • Búsáhöld
  • Verkfæri
  • Tölvur og prentara
  • Símtæki
  • Bílar
  • Bílaviðgerðir
  • Póst og símaþjónusta
  • Tryggingar
  • Hársnyrting
  • Snyrtivörur
  • Skartgripir og úr
  • Hreinlætisvörur
  • Flugfargjöld

Neðra þrep virðisaukaskatts hækkar úr 7% í 11% – Vöruverð hækkar um 3,7%

Helstu vörur og þjónustuliðir í neðra þrepi virðisaukaskatts:

  •  Mat- og óáfengar drykkjarvörur
  •  Bækur
  •  Dagblöð og tímarit
  •  Geisladiskar
  •  Heitt vatn
  •  Raforka til húshitunar
  •  Bleiur og smokkar
  •  Gistiþjónusta
  •  Veitingaþjónusta
  •  Afnotagjöld útvarps- og sjónvarpsstöðva
  •  Aðgangur að vegamannvirkjum – Hvalfjarðargöng

 

Almenn vörugjöld eru felld brott 

Almenn vörugjöld eru afnumin en þau voru lögð á sykur og sætar mat- og drykkjarvörur, stærri raftæki, byggingarvörur og bílavarahluti.

Helstu breytingar á vörugjöldum eru eftirfarandi:

Sykur og sætar mat- og drykkjarvörur (sykurskattur)

Áhrif breytinganna á verð einstakra vara er misjafnt og fer eftir því hversu mikinn sykur/sætuefni þau innihalda en hvert kíló sykurs bar fyrir 1. janúar 210 króna vörugjald.
Virðisaukaskattur á þessum vörum hækkar hins vegar úr 7% í 11%.

Dæmi um sætar mat og drykkjarvörur sem báru vörugjald (sykurskatt)

  • Sykur, molasykur, púðursykur o.þ.h. – 210 kr/kg
  • Gosdrykkir – 21 kr/lítra
  • Ís – 32 kr/lítra
  • Sultur, grautar, ávaxtamauk – 210 kr/kg af viðbættum sykri
  • Kex og sætabrauð – 210 kr/kg af viðbættum sykri
  • Súkkulaði og sælgæti – 210 kr/kg af viðbættum sykri
  • Sætar mjólkurvöru – 210 kr/kg af viðbættum sykri
  • Sætt morgunkorn – 210 kr/kg af viðbættum sykri

     

Stærri raftæki sem bera 25% vörugjöld – lækka í verði um 21%
Virðisaukaskattur á þessum vörum lækkar jafnframt úr 25,5% í 24%

Dæmi um vörur sem báru 25% vörugjald

  • Sjónvörp
  • Útvörp, hljómflutningstæki og hátalarar
  • Myndbandstæki
  • Heimabíókerfi

Stærri raftæki sem bera 20% vörugjöld – lækka í verði um 18%
Virðisaukaskattur á þessum vörum lækkar jafnframt úr 25,5% í 24%

Dæmi um vörur sem báru 20% vörugjald

  • Þvottavélar
  • Þurrkarar
  • Eldavélar, helluborð og ofnar
  • Kæliskápar
  • Frystiskápar- og kistur
  • Uppþvottavélar
  • Örbylgjuofnar

 

Byggingavörur og bílavarahlutir sem báru 15% vörugjöld – lækka í verði um 14%
Virðisaukaskattur á þessum vörum lækkar jafnframt úr 25,5% í 24%

Dæmi um vörur sem báru 15 % vörugjald

  • Vaskar, baðker, sturtuklefar, salernisskálar
  • Blöndunartæki
  • Gólfefni
  • Flísar
  • Veggfóður
  • Gipsplötur, þiljur
  • Lampar og ljósabúnaður
  • Rafgeymar
  • Stuðarar
  • Gírkassar
  • Vatnskassar
  • Baksýnisspeglar
Close Menu

About Salient

The Castle
Unit 345
2500 Castle Dr
Manhattan, NY

T: +216 (0)40 3629 4753
E: hello@themenectar.com