Nokkuð hefur borið á því að fólk hefur samband við skrifstofu félagsins til að fá upplýsingar um það hverjir eiga að taka þátt í yfirstandandi atkvæðagreiðslu um verkfallsaðgerðir. Einungis þeir sem starfa eftir kjarasamningi við Samtök atvinnulífsins, þ.e. á almenna vinnumarkaðinum taka þátt í atkvæðagreiðslunni að þessu sinni.

Þeir sem EKKI taka þátt eru t.d.:
- þeir sem eru í atvinnuleit
- starfsmenn sveitarfélaga, t.d.
– starfsfólk á sambýlum
– starfsfólk í skólum og leikskólum
- starfsmenn ríkisstofnanna, t.d.
– starfsfólk á sjúkrahúsi
– starfsfólk hjá Vegagerð
- þeir sem vinna við beitningu og línu
- þeir sem starfa á bændabýlum (þó ekki þeir sem starfa við ferðaþjónustu)
- þeir sem starfa eftir stórframkvæmdasamningnum (Norðfjarðargöng)
- starfsmenn Hádranga
- starfsmenn Steinullar
- sjómenn
Ef einhver telur sig eiga að vera á kjörskrá en hefur ekki fengið send gögn er hægt að kæra sig inn. Er viðkomandi þá beðinn að hafa samband við skrifstofu félagsins sem sendir málið til kjörstjórnar.